Í dag er laugardagur, sem fyrir mig þýðir bara það að ég get sofið eins lengi og mig langar. Oftast nær mjög jákvætt en umfram allt huggulegt. Fyrir Elínu þýðir þetta þó mikið meira en einhver huggulegheit. Það er skrifuð regla hjá henni að sofa út, og ef einhver reynir að breyta nokkru með það þá hlýtur hann verra af (eða jafnvel deyr, einsog kemur í ljós síðar), þetta lærði ég í morgun.
Þetta byrjaði allt á því að í gærkvöldi (föstudagskvöld) höfðum við verið úti að borða með Helga og Elvu (ekki Helgu og Ella samt, en þökk sé þessum nafnaflækjum get ég ekki borið nöfn þessa kærópara rétt fram í dag, endar alltaf í Helva og Elgi eða Ella og Helga, eða Helgi og...) og drifum okkur svo heim, chilluðum til c. 1 um nóttina. Þá var komin háttatími, hjá mér allavega.
Svo í morgun þegar ég vakna um 8 leytið, í glampandi sólskini og húllumhæ-i, sé ég það að það er sóun á góðum degi að sofa lengur, svo ég fer framúr, les mbl.is, fótboltafréttir, horfi á Sky sport fréttatímann til c. 10 og fer svo að vekja kjötbolluna. Eitt helsta trickið mitt til að vekja hana um helgar er að ljúga hvað klukkan er. Dæmi, ef klukkan er 9 segi ég henni að klukkan sé að verða 11 og hún þurfi nú aldeilis að drífa sig á lappir. Ég reyni trickið, segi henni að klukkan sé orðin 11, en hún vill bara alls ekki á fætur.
Svo ég fæ hugmynd að nýju tricki.
Örvar og Elín eru æskuvinir, slitu barnsskónum á Hvolsvelli, bjuggu saman á tímabili meðan þau voru í F.Su og fleira og fleira, svo að Örvar veit allt um Elínu og öfugt. Um daginn þegar hann og Unnur komu í heimsókn þá las hann Elínu pistilinn hvað varðar svefnvenjur hennar, þar sem hann sjálfur sefur aldrei lengur en til 9. Ég ákvað því að fá Örvar til að hringja í Elínu, vekja hana, og skamma hana meðan ég myndi fara út og hlaupa (í sólinni í garðinum sem var næs). Þegar ég kem heim sirka klukkutíma síðar, er Elín ennþá uppí rúmi, sofandi, en ég var búinn að fá sms í símann. Eftir að hafa lesið það var mér ljóst að Örvar hafði augljóslega hringt og vakið hana. Í sms-inu stóð:
"Thu er daudur. Kl er ekki ordin 11! EG TARF MINN SVEFN"
hahahahhahahahah
Ég ætla aldrei að henda þessu sms-i. Takk fyrir hjálpina Örvar, hún fór á fætur þegar ég kom heim og allir lifðu hamingjusamir það sem eftir var.
Bæ að eilífu.
ge