Monday, May 23, 2005

Góður á því eða?

Þá er þriðja síðasta helgin mín hérna í bili yfirstaðin og nú eru rúmar 2 vikur í próf og allt að verða brjálað. Var boðið í mat til Írisar og Dodda á laugardaginn og var þar í góðum félagsskap að horfa á Eurovision og bara almennt chill. Ég, Óli og Hreiðar sýndum lit á laugardaginn og fórum á enska pubbinn að horfa á Man utd. tapa fyrir Arsenal í enska bikarúrslitaleiknum. Þar var hörkufjör og fullt af enskum æstum bullum sem blótuðu hálf tannlausir oní Guinnessinn. Maður fékk sér einn ölara þar, hvað er annað gera þegar maður getur valir úr 283 tegundum? Svo var gærdagurinn helvíti fínn þar sem ég fór í ræktina og hitti fyrir þar Óla sem var stutt en Doddinn tók heldur betur á því með mér og við útúrpumpuðum okkur með allskonar helmössuðum æfingum sem Doddi lumaði á. Svo tókum við gufuna og pottinn og eftir það laumaði maður sér heim og fór að lesa og dúlla sér, einn í kotinu þar sem Ívar skrapp í fermingu á Ísland. Ekkert nema bara gott mál.

En dagurinn í dag er búinn að vera góður líka. Var bara í skólanum frá 10-12 og svo hjólaði ég niðrí bæ, settist við ána sem rennur í gegnum bæinn í sólinni og las tvo góða kafla í Logistics. Algjör snilld, þarf að gera meira af þessu. Svo er spáð 25 stiga hita og steikjandi Sahara sólarstemmningu á föstudag og laugardag, ég eiginlega er sáttur með ástandið einsog það er núna, en jæja, maður skreppur þá bara á ströndina sem er hérna rétt hjá og sleppir sér ;)
En ég er farinn að gera eitthvað, öll komment vel þegin. Annars trúi ég því að það séu fáir sem noti internetið mikið núna þar sem allir heima eru komnir í sumarfrí og eru vinnandi glaðir. En ég er hérna ennþá, og verð í rúmar 2 vikur, svo bara "take one for the team" og supportið mig.
X Gummi - fyrir framtíðina.

2 comments:

Anonymous said...

jæja guðm(d)undur looks like you are keeping it real
bara að vita að það er snilld að lesa útí góðu veðri. have fun keep posting or keep hosting? lame I know

Anonymous said...

vertu duglegur að læra pitti pitt og don´t let the sun go down on you too much..gætir fengið arabasting!! kaching hjá mér all day everyday..bíð spennt eftir þér í partýlætin ;) kiss kiss
tin tin tulip