120 klst. and counting
Ótrúlega stutt þangað til ég tek flugvélina heim á Ísland. Nú fer hver að verða síðastur að læra helstu módel og kenningar fyrir prófið en þó er stressið í algjöru lágmarki finnst mér. Það eru flestir sem ég þekki hérna alveg sallarólegir og hafa litlar sem engar áhyggjur af þessu, en ég sjálfur er með svona pínu kvíða, eitthvað sem er alveg eðlilegt. Sama þó að mér myndi ganga alveg fjandi vel þá er ég þannig að ég fer að hugsa að mér hefði nú getað gengið aðeins betur, en það rekur mann bara í að læra meira sem er jákvætt.
Ég "rakst" á Dabba frænda a.k.a. Bananavélmennið á MSN í gær og vorum við að spjalla þegar hann sagði mér frá því að hann væri staddur á Benidorm með bjór í annarri á netkaffihúsi, alveg rólegur. Helvítis pungurinn, ég hafði ekki minnstu hugmynd um að hann hefði flúið land. Góður á því hann Dabbi.
Var að lesa það að gullkálfurinn sjálfur Raul væri orðaður við Liverpool þessa dagana, sem yrði algjör snilld. Hann er ekki nema 27 ára gamall, markahæsti leikmaður meistaradeildarinnar frá upphafi með 3 evróputitla á bakinu og nokkra spænska bikara líka. Ég verð að segja að ef Rafa fær hann á Anfield er hann að gera góða hluti, kominn tími á að kaupa toppklassaleikmenn til félagsins en ekki einhverja meðalmenn endalaust, þó að nokkur góð kaup hefðu verið gerð á seinustu leiktíð. En næsta season verður spennandi, gaman að þessum leikmannamálum núna. Verður samt erfitt fyrir mína menn að toppa nýafstaðið tímabil, þá sérstaklega á alþjóðavettvangi.
Á föstudagskvöldið hélt einmannafélgið Pulsan sinn síðasta hitting áður en allir fara heim í sumarfrí. Þetta félag var stofnað á síðustu önn þegar við vorum 4 saman peyjar allir með dömurnar okkar víðsfjarri og vorum við ansi einmanna þá. Og svo er Ívar líka félagi þó það megi dæma um það hversu einmanna hann sé? En allavega við elduðum þessa dýrindismáltíð og spiluðum svo "Hold'em Poker" villt og galið. Siggi Páls var heiðursgestur og endaði hann sem chipleader. Við tveir héngum lengst inni og þar sem allir hinir voru dottnir út fannst okkur ekki rétt halda endalaust áfram. Enda var nóg annað fyrir stafni einsog Giftingaveisla hjá honum Jenna sem við Ívar bjuggum hjá hérna fyrstu vikuna okkar, einhverjir myndu þekkja hann sem pabba hennar Jennýjar. En við fórum þangað í hörkuveislu og var ansi gaman þar og fólk í góðum gír. Ég og Doddi vorum helvíti góðir að ljúga að Dönunum að við værum frá Bornholm, sem er eyja fyrir utan Danmörku og fólk þaðan talar oft á tíðum bjagaða dönsku (einsog við) og var það hin mesta skemmtun að lofa Bornholm bak og fyrir, þó við hefðum aldrei komið þangað. Held samt að einn kall hafi grunað eitthvað, tók hann okkur á eintal og hótaði að lemja okkur og taygaði síðan fullt glas af whiskyi og vildi að við myndum leika það eftir. Við hlógum bara og létum hann eiga sig. Sögðum að þetta væri ekki siðurinn í Bornholm.
En ég þarf að fara í þvottahúsið, það er alltaf fílíngur og partý þar á sunnudögum. Hej Hej.
1 comment:
Öss öss öss...bronholm pitti, been there done that!! En ha HA 4 dagar í arrive...ég erstrax farin að plana borða og kökufeast..lárukakan með extra peanuts og grænt þema..hvernig hljómar það?? Iron maiden er svo annað kveld..fáránlegur tími áþriðjudegi...maður hefur enga afsökun til að drekka sig dead drunk þá...en ég ætla að stelast með símann minn inn og taka mynd hehehe..það er mission.. Það er nemlig klukkutíma ræða um bönnun á myndavélum og slíkum búnaði aftaná miðanum og það fær mann pínu til að stelast...en keep up the good work og sterri erbara betri...elska stress can´t live without it...annars væru nú margir merkir menn ekki merkir ha?pæling.. en kiss kiss og hlustaðu á lögin sem ég sendi þér...
kv. tinni tulip
Post a Comment