Thursday, August 25, 2005

Ítalía, London, Danmörk - Nýjar Myndir!!

Og hér er ég mættur aftur. Sumarið liðið, fríið búið, og skólinn byrjaður. Ég átti alveg fáránlega góða ferð til Ítalíu þar sem ég slakaði á í rúmar 2 vikur með systrum mínum, drakk bjór, tók sól, skoðaði mig um einsog alvöru túristi og tók fullt af myndum sem nú eru komnar inná síðuna.
Þessi ferð var alveg frábær verð ég að segja og er stefnan að fara aftur á eyjuna næst þegar tækifæri gefst. Ég kom tilbaka til Danmerkur alveg sauðslakur, ekki búinn að hreyfa vöðva allan tímann og nú þarf maður að fara að massa skólann, æfa handbolta daglega, og svo er ferð til London á döfinni. Ekki það að maður sé búinn að ferðast nóg undanfarið, kominn með nóg af ferðalögum. Fannst það soldið fyndið þegar ég var á flugvellinum í Napoli, að vera Íslendingur búsettur í Danmörku, staddur á Ítalíu, á leiðinni með flugi til London. En já ég er semsagt að fara þann 7. -12. sept til London með Hreiðari skólapilt og félaga til að redda okkur almennilegri placement í Janúar á næsta ári. Ætlum við að fara á fund hjá Kaupthing og jafnvel fleiri fyrirtækjum í borginni, og svo er ætlunin að skoða skóla uppá framtíðina líka. Við munum gista á hóteli í central London og læðist að mér sá grunur að við eigum eftir að kíkja e-ð á lífið föstudags eða laugardagskvöld? Hver veit? Annars verðum við í jakkafötunum á Bond street, þið finnið mig þar ;)

En endilega skoðið myndirnar, ekki nema 110 stykki sem er þó aðeins þriðjungur af þeim myndum sem ég tók. Svo bráðlega kem ég með ferðasögu úr Ítalíu ferðinni.

Lifið heil, bið að heilsa.

15 comments:

Anonymous said...

Vá þetta hefur verið alveg fullkomin ítalíuferð. Skemmtilegar myndir :) Virkar bara jafn mikil stemmning og hérna í Kolding ;)

Gummi said...

Já svipuð stemmning verð ég að segja! Ég var einmitt að koma af ströndinni í 35 stiga hita með sand á milli tánna og sólarvörn á rasskinninni.

Sama stemmning!

Anonymous said...

þú munnt fynna mig á Bond street, hvað er það, making cash, þú munt fynna mig á bond street.....

Anonymous said...

vá það er aldeilis upp á mönnum typpið ;) menn hreinlega VERÐA að koma með placement til baka eftir þessi statement! nú duga engin vettlingatök
ÞETTA ER ENGINN LEIKSKÓLI!

Anonymous said...

Djöfull er þetta góð mynd af Páfanum... þeir gætu verið tvíburar

Anonymous said...

Það er gtreinilega einn Ari Hrafn í hverju landi....

Anonymous said...

vá þetta hefur verið skemmtileg ferð hjá ykkur.. flottar myndir, þið eruð ýkt sæt saman!

Stelpur við verðum að fara til ítalíu, folk er sko miklu nánara þar.. ;) vilja það ekki allir..

Anonymous said...

Sigrún mín....er þetta ekki fullgróft..þetta kallast að reyna að skemmta sér þó að allt sé á öðrum endanum sem þú veist vel...brosa í gegnum tárin!! Heyrði að þú hafir skemmt þér vel á blómaballi um helgina nema mínus myndir..hver er munurinn? Segðu mér það? Allt í góðu, ekki misskilja!

Anonymous said...

Gróft? þetta átti alls ekki að vera neitt móðgandi.. og þetta með náið fólk var nú nett grín því mer var sagt að fólk myndi heilsast öðruvísi en hér heima og maður er ekki að taka myndir af því hér þear fólk heilsast svo ég á ekki myndir. En ja það var mjög fínt á þessu balli, ekkert samt myndvænt, ef þú átt við eitthvað sérstakt þá geturu alveg spurt mig sko, ég er alveg tilbúin að svara því, mér finnst netið samt ekki grundvöllur þess en það er sama..

Vil ekki vera með leiðindi inná minni eigin síðu..

Anonymous said...

Hver er með leiðindi......ekkert serious, svo ekki taka þetta til þín..reyndi nú að hringja í gær en fékk ekkert svar..og nei ekkert sérstakt bara að heyra í þér hljóðið..Forget about it..goodthings

Anonymous said...

ja ég veit, ég var á hestbaki:)

Anonymous said...

Wow, hvad er ad ske? Sigrun min, tu veist ad okkur tykir mjog vaent um tig og tu att alltaf eftir ad vera partur af fjolskyldunni og eg vona ad naest tegar vid hittumst ta getum vid tekid gott spjall ...en ad commenta svona er ekkert fyndid og alls ekki ter i hag tar sem ad tu veist betur.Tad eina sem tessar myndir syna erum vid; systkinin,italska fjolskyldan og vinir sem vorum ad reyna okkar besta vid ad hressa broa vid og gera tad besta ur ollu... og ter ad segja tarf madur ekki ad vera storleikari til ad setja upp gervibros. Vona ad tu lesir tetta og takir sem abendingu,ekki asokun eda modgun og vonandi eigum vid oll eftir ad taka fullordinslega a malinu og vera i godu sambandi, forever and ever. baci & abbracci

Anonymous said...

já mér þykir líka vænt um ykkur! En þetta comment átti ekkert að vera eitthvað særandi en þessar myndir voru mjög flottar og ótrúlega gaman að sjá þig loksin og ykkur systkinin saman en ég viðurkenni það nú samt að mér brá doldið mikið við að frétta af þessum myndum og meira þegar að ég sá þær.. en ég veit ekkert hvað gerðist þarna og auðvitað þá kemur mér það ekkert við, þessvegna kýs ég að spyrja ekki.. en ég er ekki ein um það að finnast þetta vera svona.. en það skiptir engu máli, en gott að þið gátum skemmt ykkur:)

Anonymous said...

Flottar myndir Gummi og gott að þú skemmtir þér vel, hlakka til að fá þig í heimsókn bráðlega(skamm skamm) þú verður að fara að kíkja gamli....;) En Sigrún engin leiðindi eða neitt en mer persónulega finnst ekki sanngjarnt að láta svona...Varstu ekki sjálf að skemmta þér..... Lifið heldur áfram......

Anonymous said...

en altaði nú ekkert að láta neitt illa en já takk það er alveg rétt, lífið heldur áfram:)