Ég var tekinn
Ég var klukkaður! Kom algjörlega í bakið á mér einsog samkynhneigður karlmaður. Þetta hefði aldrei gerst ef þetta hefði verið svona "klukk" einsog í eltingaleik, því allir vita að ég hleyp einsog vindurinn. En takk Anna Guðrún, ég á einn inni hjá þér, man þetta!
Skilgreiningin á "klukki":
"Klukk er internetfár sem tröllríður bloggheimum þessa klukkutímana og felur í sér að viðkomandi fórnarlamb klukks á að skrifa fimm handahófskennd persónuleg atriði (sem hinn sótsvarti almúgi vissi ekki fyrir væntanlega) og klukka svo nokkur stykki bloggara til viðbótar."
Hérna fáiði það.
1. Ég þoli ekki neitt sem viðkemur eldamennsku, ef ég myndi ekki þurfa að borða myndi ég sleppa því. Oftar en ekki panta ég mér mat því þegar ég kem heim af æfingum á kvöldin þá er það síðasta sem ég nenni að fara að mausa e-ð ógeðslegt í eldhúsinu. Það er alveg á hreinu að konan mín í framtíðinni VERÐUR að vera liðtæk í eldhúsinu! (Eða kunna á símann.)
2. Mér er svo heitt á næturna að vanalega endar sængin alltaf á gólfinu. Ég hef aldrei skilið þetta almennilega, ég bara get ómögulega sofið með sæng því þá get ég ekki sofnað útaf hita. Merkilega ómerkilegt!
3. Eins leiðinlegt og mér finnst að elda þá elska ég að mönsa. Ég mönsa nammi, kex, stundum snakk og bara allt það sem hægt er að hafa við höndina án nokkurrar fyrirhafnar. Ég er sennilega einn af 5 bestu mönsurum sem ég veit um ;)
4. Á yngri árum var ég algjört bully. Ég níddist á öllu sem dró andann og var bæði stríðnispúki og hrekkjusvín. Í 8.bekk fór ég til skólastjórans hvern einasta dag fyrstu 3 vikurnar, síðan bara ca. 1 sinni í viku. Ég veit ekki hvað kom yfir mig en í dag er ég sallarólegur og stríði ekki nokkrum manni (yeah right!)
5. Ég er fíkill í hreyfingu. Ef ég fer ekki á æfingu á hverjum degi verð ég hálf-ofvirkur, einsog ég sé með orm í rassinum. Ég iða allur og líður ekki vel fyrr en ég hef svitnað ágætlega og fengið mína útrás, öskrað og bölvað, sparkað í einhvern eða keyrt einhvern niður í handbolta. Ótrúlegt hvað maður fær mikla útrás í handbolta, maður getur virkilega verið fantur og djöflast í andstæðingnum, hrint, rifið, klipið, slegið, olnbogað létt í þindina og allt í góðu... Djöfull elska ég sportið!
Ég ætla hér með að nota tækifærið og klukka þá Cuntjuice bræður mína, Ella Joð, Sibba og Ívar Atlason, ásamt Brynjari Bergsteinssyni og gamalli skólasystur, Höllu Kareni. Til hamingju! Mikið verður þetta forvitnilegt!
3 comments:
1 og 2 eru totally me..en vó hreyfing..ekki alveg nema ég þurfi að shina mig til og bully..átti mitt comeback í 10 bekk þarsemóli frændi tók mig inn á teppið fyrir sóðaleg bullybréf...ekki meira um það..allt bygones...og þetta með sængina..lækkaðu á ofnunum og opnaðu gluggann strákur..segir okkur sig pínulítið sjálft..en flott lúkkið á síðunni metró fyrir nýja tíma...kiss kiss og keep on klukkin..
já ég fékk sko að kynnast alsberasta gaur í heimi, kúreka hattur og g-strengur er uppáhaldið okkar.
já manstu hvernig við tókum vignir og valgeir alltaffffff plaffffff
þetta var gayri
Post a Comment