Sunday, September 25, 2005

Handboltinn rúllar

Í gær var íþróttadagur. Liverpool byrjaði á því að gera stórmeistarajafntefli við eitt færasta knattspyrnulið stjörnukerfisins, Birmingham, og eru þeir því 1 stigi nær titlinum. Við höfum ekki enn tapað leik á seasoninu, einsog t.d. Man Utd, en höfum þess í stað gert enn fleiri jafntefli. Erum því sennilega jafn góðir og mörg önnur lið.

Úr einu í annað. Eftir Liverpool-flugeldana var stefnan tekin á handboltaleik þar sem Kolding vann GOG örugglega og strax á eftir spiluðum við í 2. liðinu. Við áttum ágætis dag, töpuðum reyndar eftir spennandi lokamínútur en þetta var hörkuleikur og barist til síðasta blóðdropa. Kempan er orðin fyrirliði og ég reyndi að leiða mína menn áfram á íslensku hörkunni og heppnaðist það vel. Vörnin var að smella vel saman og við lömdum andstæðingana helv. vel ef þeir hættu sér of nærri. Mér tókst t.d. að senda einn útaf meiddan eftir að við lentum í samstuði og svo sló ég einn beint í andlitið og fékk fyrir það písmerki frá dómurunum. En það var afturámóti sóknarleikurinn sem var okkar akkilesarhæll, skoruðum ekki nema 23 mörk, þar af ég 3, og voru sóknaraðgerðirnar fremur einhæfar og oft á tíðum byggðar á einstaklingsframtaki. Ég ætla að skella því á Finnann í liðinu sem stjórnar spilinu, hann hefur átt betri daga kallinn.

Hef ekkert meira að segja, heyrumst, og sjáumst bráðlega!

2 comments:

Anonymous said...

hey sagan segir að þú ætlir að koma heim í haustfríinu?? er eitthvað til í því?;)

Gummi said...

Það er aldrei að vita hverju skolar uppá Stokkseyrarstrendur á haustin!

Heyrði einusinni að Elvis hafi fundist í flæðarmálinu við frystihúsið, en maður á ekki að trúa öllu sem Siggi Sól segir.

Elska samt Siggsann. Finnst ekki betri steppari í Árnessýslu.