Thursday, September 29, 2005

Mausið - Með Gumma E!

Einsog Jói Fel! Allavega ætla ég að fylgja fordæmi Bunny Girls og setja inn gómsætar uppskriftir af hinu og þessu matarkyns reglulega, því einsog flestir vita er ég algjör refur þegar kemur að eldamennsku.
Ég ætla að byrja á ítalskri matargerð einsog hún gerist best, og hvað er þá betra en búðarpizza.

Hráefni:

Búðarpizza
Dressing (fyrir atvinnumönnarana)

Leiðbeiningar:

Takið pizzuna útúr frystinum og tætið af henni umbúðirnar, en ekki henda þeim, þær koma að góðum notum seinna. Hendið pizzunni á disk (samt ekki of harkalega, pizzan er væntanlega glerhörð úr frystinum) og bombið henni í rúma mínútu inní örbylgjuna. Á þessari mínútu er gott að skrifa sms, athuga hvað er í sjónvarpinu eða spila vasabilljard. Pizzan er armakrikavolg loks þegar maður þvælir henni útúr örbylgjunni og þá er næsta verk að týna allt grænmeti af henni einsog sveppi og papriku, því ekki vill maður borða frá dýrunum! Þá koma tættu umbúðirnar sér vel því maður fleygir dýramatnum á þær og svo hendir maður öllu saman í ruslið, snyrtimennskan í fyrirrúmi. Ef þið eruð vön eldamennsku, sem ég er ekki, hafið þið örugglega forhitað ofninn, en það er algjörlega óþarfi. Pizzan tekur þá bara aðeins lengri tíma en það sagði líka enginn að þetta væri fljótlegt. Stillið ofninn á svona 100-250 gráður og hafi pizzuna í miðjum ofninum eða efst eða neðst í sirka hálftíma, og þá er ég að tala um svona plús mínus 15 mínútur allt eftir því hversu frosin pizzan var og hversu vel maður vill baka hana. Eftir allt þetta leiðindamaus er pizzan loksins tilbúin og þá er málið að úða dressingu yfir hana alla einsog það sé sjálfstæðisflokkslykt af henni og dressingin sé það eina í heiminum sem geti látið hana fara. Svo er besti tími dagsins kominn en það er mönstíminn en þá fær maður að njóta alls erfiðisins sem á undan gekk og ég segi bara gjöriði svo vel!

(Undantalin atriði voru framkvæmd af atvinnumönnara og er ekki mælt með að fólk reyni þetta heima)

13 vafasamar athugasemdir:

BRYNJAR said...

Atvinnumönnsari á skilorði.

Óli said...

hápólitískur matarflokkur hverjum hefði grunað það frá háttvirtum þingmanni GUmmiE

Sólrún said...

OKey Pitti...af hverju notarðu ekki quickburner 2005 og flambrar pizzuna bara...það tekur innan við 2 mín..yeeeas its true..og þú þarft ekki einu sinni að taka umbúðirnar af..en ég skora á þig að koma með uppskriftina þína af morgunmat dauðans!!(danska haframjölinu hans pabba)En er það bara ég eða skilur eh þessi komment frá honum óla? Er ekki að fatta svona pólítíkaorðaforða sem á víst að vera svo kúl en er frekat last season!

Gummi said...

Hann Óli er blár í gegn, af öfund vil ég meina en hann sjálfur er mjög sjálfstæður í kommentum.

Han hefur sjálfstæða hugsun og sjálfstæða heimasíðu sem þú getur líka kíkt á.

En ég kem með næst deadly danska haframjölið hans pabba sem ég hef ekki borðað síðan ég var 11 ára reyndar, en ég man ennþá combóið.

Linda Ósk said...

...ég er sammála þér með að taka ALLT grænmeti af, loksins einhver með viti í þessum heimi!

Elín Mjöll said...

mmmmmmmmmmmm, ég fæ alveg vatn í munninn! ég ætla að prófa þetta-

Óli said...

djöfulsins diss er þetta en Gummi þú veist að ég er rauður eins og versti kommi through and through

Biðst velvirðingar á þessum fáránlegum kommentum en þau eru við hæfi frá fáránlegum gaur ;)

Sigrún Arna said...

hey þú gleymdir að segja hvað þú ert alltaf lengi að tína alla paprikuna af:)Það tók nú alltaf sinn tíma..

Gummi said...

Ég er kominn með nýja tækni, eykur afköst um 15% en á sama tíma er hún 20% hraðvirkari.

Brynjar said...

Hvað Viagra?

Gummi said...

;)

Sigrún said...

já þú hlýtur að hafa keypt þessa mögnuðu vél hjá kínverjanum á horninu:)

Óli said...

hey og sólrún það er ekki last season það er svo in núna alveg eins og það að ég veit hver er ANTM?