Póker-Kónger
Spilaði póker í gær við ýmsa merka menn og konur. Grunur hefur læðast að mér síðustu skipti sem ég hef spilað póker, grunur sem styrkist meir og meir með hverju spilinu og í gær held ég að hann hafi verið staðfestur. Ég er lélegur í póker. Ég fæ léleg spil, og spila þeim illa út. Ég fer illa með spilapeningana mína, ég fer útí gálaus veðmál sem stjórnast einungis af ofurtrú minni á sjálfri mér og tvistunum og fimmunum sem ég hef á hendi hverju sinni. Í gær tókst mér að verða sá fyrsti til að tylla mér í "the losers lounge," for the 4th consecutive time! Losers lounge er semsagt þegar þú hefur tapað öllu þínu og átt vinsamlegast að yfirgefa pókerborðið og setjast á stað þar sem þú getur ekki orðið öðru fólki til skammar. Og þetta er orðið þreytt því ég sit alltaf einn þar í dágóðan tíma áður en næsti spilari joinar. Í gær tapaði ég öllu mínu, sat svo í losers lounge, fékk svo undanþágu til að koma aftur inní spilið, en tapaði öllu mínu aftur og fór þá heim að sofa. Mínum tíma var betur varið í það.
Til að láta mér líða betur get ég auðvitað alltaf sagt að þetta sé nú bara spil og maður þurfi ákveðna heppni til að fá góð kort o.s.frv. En í rauninni held ég að það sé ekki málið. Tökum dæmi, Jói fitubolla tapar alltaf í fótbolta í frímínútum í skólanum. Sama hvort það séu stóru eða litlu frímínútur, þriðjudagur eða fimmtudagur, alltaf tapar Jói feiti. Hann gæti lifað í voninni um að þetta hafi verið tóm óheppni, dómarinn var óhliðhollur hans liði, slæmt dagsform, vont nesti og fleiri afsakanir sem Jói gætu fundið uppá. Myndi það samt ekki vera snyrtilegra ef hann myndi bara átta sig á því að hann er lélegur, þetta sport er ekki alveg að detta fyrir hann og hann ætti að eyða tíma sínum í eitthvað annað?
Þó að ég sé lélegur get ég samt aldrei viðurkennt það að einhver annar sé góður í póker. Allir þeir sem vinna mig vinna bara útaf því að þeir voru heppnir. Heppnir með spil, heppnir með sæti eða bara "Heldig Mogens" einsog daninn segir. Ég tapaði útaf því að ég er lélegur, en sá sem vann var heppinn. Þá er ég sáttur.
Og ef þið sjáið mig brosa eftir gjöfina er það ekki því ég er með góð kort. Þvert á móti.
4 comments:
Ég hata póker..hef aldrei verið góð í því spili og spila það ekki því ég vinn ekki því ég spila bara til að vinna og ef ég vinn ekki þá svindla ég og ef það kemst upp þá byrja lætin!!
Einsog maðurinn sagði:
"Óheppinn í spilum, heppinn í klámi!"
blessaður þetta kemur með æfingunni alveg eins og gott kynlíf
Er það þá ekki bara goðsögn ;)
(einsog jólasveinninn, kemur ca. einu sinni á ári)
Post a Comment