Thursday, September 01, 2005

The plot thickens

Þá eru línur að fara að skýrast með framhaldsnám. Var að koma af fundi með Ian Charles sem er mesti snilldarbreti sem fyrirfinnst. Hann mælti sterklega með Kingston University í London sem var einn af "the favorites" fyrir fundinn. En eftir að hafa útlistað það helsta um skólana sem eru í boði er maður nokkuð öruggur um hvert stefnir. Eina sem maður þarf að fara að skoða er fjármögnun á skólagjöldum því önnin kostar rúm 8000 pund. Ég hristi það auðvitað framúr erminni einsog úrið mitt. Svo er bara málið að kíkja á skólann, skoða aðstæður og það allt á fimmtudaginn næsta þegar maður verður í Londúnum. Hvet alla til að skoða heimasíðuna.

Það komu rúmlega 130 nýnemar í skólann í dag, þar af 11 íslendingar sem er gott mál. Mafían styrkist. Djöfull man ég þegar maður mætti í fyrra og vissi minnst, hálf villtur og málhaltur. En í dag er maður orðinn senior í skólanum og á mánudaginn næsta er Pubcrawl þar sem nýnemarnir verða leiddir um bæinn í litlum hópum og fylltir af áfengi á völdum pöbbum og skemmtistöðum. Ég og Ívar aka Gæsin aka Grænlandsmávurinn verðum á Shakers með einhvern sæmilega dónalegan drykkjuleik og batmangrímu?

Svekkelsi vikunnar (hingað til 7,9,13) er það hvað ég er góðhjartaður. Fór í háttinn á þriðjudagskvöldið og sá sæmilega góða flugu á veggnum hjá mér. Er vanur að henda ættinni hans Atla Fannars útum gluggann eða sturta þeim niðrí klósettið (hrossaflugur) ef þær láta sjá sig en þessi var bara svona snyrtileg og ekki með neinn skæting eða læti svo ég leyfði henni að dóla sér á veggnum og fór uppí rúm. Það er frekar heitt þessa dagana hérna svo ég var ekki með neina sæng og því algjörlega berskjaldaður gagnvart öllum árásum í skjóli næturinnar, og það varð mér að falli. Ég fór í skólann um morguninn og klæjaði hér og þar og var ekki að fíla það get ég sagt. Fór mig svo að gruna ýmislegt þegar ég fór að bólgna á olnboganum. Hafði þá ekki flugan nagað á mér olnbogann (ekki bitið), bitið mig í bakið, og fjandinn hafi það reynt að nauðga mér í leiðinni. Ég var með 4 bit á hægri rasskinninni! Þetta var ekki bara gangur náttúrunnar heldur persónulegt. Ég líka trylltist þegar ég kom heim, fann fluguna á sama stað á veggnum og hún var kvöldið áður og setti skósóla á milli augnanna á henni. Og grunur minn var staðfestur, það var hún sem hafði bitið mig og nagað nóttina áður því fagurrauður blettur kom á vegginn, semsagt blóðið úr hægri rasskinninni á mér.

Já það er fjör í DK og sá sem skrifar næstur í gestabókina fær fría Pizzu.

En Gummi er úti einsog Lalli Johns.... pleeee

4 comments:

Anonymous said...

hey þú ert þá ekkert á leiðinni heim.. en góð viðlíking þetta með að hrista peningana út úr erminni "eins og úrið", mundu bara hver gaf þér úrið,´á ég þá líka að gefa þér peningana?!:)

En já vertu nú samt góður við busana, meina ef þeir þola jafn mikið og þú í drykkjuleik, þá er auðvitað úti um þessa vesalings krakka:)

ps. ma ég fá leyiorðin til að blogga,, er búnað gleyma því..

Anonymous said...

Chao porca..si si senjora og tanke sjon..pivo dobra vecer thzan..ja mašur er sko komin a lagiš meš tungumalin i tessu landi og hata tad ekki eđa hvađ?? allt gott ad fretta af okkur og vedrid er heitara en i helviti og bjorinn er kaldari en collviti..og bara vel her og fun in the sun..bjorinn i annari og botninn upp!! Kissi kiss og hvadu tad gott..drekkum double for ju og komum med betri myndas0gu ever..chao

Gummi said...

Snilld að heyra það... Skemmtið ykkur fallega og takið fullt af myndum.

Anonymous said...

þakkaðu fyrir meðan eistun fengu frið
það er eflaust leiðindabit sem við öll viljum fljótt gleyma