Wednesday, October 05, 2005

Aldi ævintýrið

Lenti í ómannlegri reynslu í dag. Á leiðinni heim úr skólanum kom ég við í Aldi, sem er svona semi Bónus Danmerkur, og afþví að ég er sérstaklega viðkvæmur þessa dagana fyrir því að nenna ekki að elda, þá keypti ég mér svona örbylgjurétt. Hann var í flottum pakka svo ég lét reyna, eitthvað kjúklinga-hrísgrjóna combó sem lofaði virkilega góðu. Íí kvöld sveif á mig þessi tilfinning sem kemur nokkrum sinnum á dag, vanaði mat, og ég hugsaði: " Yess, ég á örbylgjumöns í ísskápnum, þarf því ekki að eyða nema 10 sekúndum í að henda þessu inní örbylgju og svo 3 mínútum seinna er matur." En fjandinn, þetta var eitthvað funky þegar ég smakkaði fyrsta bitann. Ef þetta tengdist kjúkling á einhvern hátt þá var þetta Colonel Sanders sjálfur sem ég var að éta. Smakkaðist einsog gamall maður. Þessi fyrsti biti varð líka síðasti bitinn og ég gerði Ívari þann óleik að leyfa honum að smakka líka, hann var á sama máli og ég hvað varðaði hugsanlegt innihald. Þegar betur var að gáð sá ég á pakkanum að það þurfti ekki einusinni að geyma þetta í kæli. Ég meina, hvaða ógeðskjúkling þarf ekki að geyma í kæli, en geymist samt í rúmt ár uppí hillu! ohhh, fæ ógeðshroll.
Allavega þá fer ég að hugsa minn gang núna hvað varðar mataræðið. Ég er farinn að borða úti einusinni á dag til að forðast eldhúsið, og meirasegja er ég kominn á það stig að það er of mikið maus að þurfa að hella morgunkorni í skál og mjólk yfir, ég einfaldlega hef ekki þolinmæðina í það. En ég sver það, eftir ævintýri kvöldsins ætla ég að taka mig til, yfirstíga allar hindranir og elda mér lasagna á morgun (það geymist líka í ísskáp svo ég get hent því í örbylgju seinna meir, enginn tími, hámarksánægja).

Annars er minnst að frétta, tognaði á maganum á handboltaæfingu, það hefur aldrei komið fyrir mig áður en er fjandi óþægilegt. Ég týndi lyklinum af hjólinu mínu svo það stendur læst fyrir utan skólann. Kolbrún systir er 25 í dag! Sú fyrsta af systkinunum til að ná þeim árangri. Ég komst að því að éger ekki búinn hérna fyrr en 15 des, upprunalega dagsetningin var alltaf 2 des, það er bömmer vikunnar. Ég er hinsvegar að koma heim eftir rúma viku og þá vil ég sjá sem flesta glaumgosa í sparidressinu. Búið!

1 comment:

Anonymous said...

Hvað var ég búin að segja þér, aldrei að treysta hrísgrjónum!! En prófaðu knorr bollasúpur..tekur 2 mín að hita og svo bara drink it up og dífa brauði út í..ég er einstaklega heit fyrir því núna..og manstu hvað gæjinn var happy í auglýsingunni..með stóra bláa knúsbangsann sem hafði verið limlestur á báðum fótum...ssshh og slagorðið var eh álíka "knús í kroppinn"