Tuesday, October 18, 2005

Homecoming

Djöfull hefur allt verið á botni undanfarið eftir að ég kom heim. Lífið bara helltist yfir mig. Á laugardagskvöldið var ég plataður heim til Sólrúnar systur og ætlaði Óskar að sýna mér nýju jeppadekkin sín inní bílskúr. Þegar hurðin inní bílskúrinn opnaðist og ég steig inn fékk ég FEITT "SURPRISE" í andlitið frá minnst 20 manns sem voru komin til að heilsa uppá mig. Vá hvað ég bjóst ekki við því. Það tók mig allavega einn og hálfan tíma að koma mér í gírinn að fara að hitta alla og skemmta mér með þeim í frábæru partýi. Takk kærlega allir sem létu sjá sig og þeir sem voru svo miklir snillingar að skipuleggja þetta. Bestu vinir í heiminum, og Sólrún og Óskar fá endalaust goodwill frá mér fyrir allt saman.

Svo eftir þetta hef ég verið í tómum leiðindum, margt mjög óvænt og óskemmtilegt komst uppá yfirborðið og sumt fólk hefur ekki komið vel fram svo minnst sé nú sagt. En það reif mig þó örlítið upp að ég fékk góðar fréttir frá London. Ég fékk vinnu hjá Baugi Group í London í janúar, og verð ég þar framí júní að öðlast reynslu og skrifa lokaritgerð. Í London er skrifstofa sem ber heitið "UK Investments" og sér um fjárfestingar Baugs á Bretlandsmarkaði sem hafa verið umtalsverðar á síðustu árum. Ég er semsagt heppinn í spilum en óheppinn í ástum. Hélt alltaf að ég væri bæði, en það var kannski bara vitleysa í mér. En þetta er snilld og betra tækifæri hefði ég ekki getað hugsað mér, nú er bara fyrir mig að fara út og gera sem mest úr því. Standa undir væntingum hjá þeim sem gefa mér þetta tækifæri. Svo fór ég í heimsókn til Binna og Rönnu í Þrastarimann í gærkvöldi, aðeins að sjá framaní þau og þau eru alltaf sömu snillingarnir. Ég held það sé erfitt að finna betra fólk allavega og þessvegna alveg sjálfsagt að halda sambandi við þau. Sátum og spjölluðum í fleiri klukkutíma um allt milli himins og jarðar.

En á dagskránni er Opna Thule mótið í Fifa 2006 á fimmtudaginn og svo Airwaves á föstudaginn. Veit ekkert með laugardaginn, gæti orðið slakur eða þá æstur, en ég hallast að fyrri kostinum þar sem löng "heim"ferð er á sunnudeginum. Þá er það Borg óttans sem tekur á móti mér með flugeldaverksmiðjurnar og Tyrkina.

En takk aftur allir fyrir partýið, gleymi þessu seint eða aldrei. Sjáumst á röltinu.

11 comments:

Anonymous said...

dem ég sé einhvernveginn fyrir mér nakinn Kínverja koma öskrandi á móti þér "supplies" :/ en það er bara ég

Anonymous said...

Glæsilegt með vinnuna hjá Baugi, til hamingju með það :) Þú ert sko aldeilis að standa þig í útlöndunum :) Njóttu annars frísins á Íslandi vel, það sem eftir er af því :)

Anna Kristín

Anonymous said...

Já djöfullinn.. Það hefði verið svo nett að fá einhvern kínverja til að vera þarna einn inni í bílskúr og ÖSKRA SUPPLIES!! Andskotinn að maður skuli fatta það núna þegar það er of seint..

Anonymous said...

Já stundum koma þeir sem maður þekkir best verst fram við mann.

En það er nú alltaf ljós í dimmunni og það sést nú best á því að þú ert kominn með eðal vinnu. Innilega til hamingju með það:)

Anonymous said...

Öss talandi um kínverjann..ég og óskar vorum einmitt að tala um það fyrri partýið en höfum bara aldrei unnið á menam..náum ekki touchinu svovið slepptum þessu bara..sorry..en já partýið var brilliant eftir mikinn æsing hjá mér og joðinu..var reyndar ofurölvinn eins og alltaf og man ekki eftir hverjir helltu niður en það er bara goodthings fyrir þá ;) bíddu bara pitti..alltaf að sofa með one eye fucking open..kiss kiss og TIL HAMINGJU með vinnuna sem ég vissi að væri þín..your are the BEST!! Go get them naked!
Kiss kiss og knús tinni

Anonymous said...

já good times hver kannast ekki við smá kínverskt "supplies" eða "flied lice you plick!"

spurning hvort hægt sé að ráða atvinnu kínara í þetta! einhver sem ráfar bara um landið í leit að góðum supplies partýum!

Anonymous said...

Til hamingju með nýju vinnuna Gummi minn:)

Anonymous said...

Þú talar um heppinn í spilum ,ertu búin að gleima póker.Og til hamingju með vinnuna hjá Baugi.

Anonymous said...

AUGURI FRATELLO, elsku besti, og eini, broi med vinnuna. veit ad tu ert buinn ad vera ad bida eftir tessu taekifaeri og enginn a tad skilinn jafnmikid og tu ad vera hamingjusamur og lansamur. gott ad vita tad ad madur a svefnplass i london og ekki gleyma tvi sem vid akvadum tegar vid vonum i Sant Angelo um ad tu myndir koma og saekja mig a snekkju til ischiu og vid myndum svo sigla eins og Roberto Cavalli og D&G a snekkju daudans um sudur evropu. Bacio, Kolla sopranos

Gummi said...

já ég man eftir því. Þegar við vorum að skoða snekkjurnar tók ég þá ákvörðun að ég skyldi eignast eina svona og sigla um eyjarnar og drekka kampavín í morgunmat.

Gefum því nokkur ár í viðbót ;)

Anonymous said...

Jón Ásgeir BeWare