já
Búinn að gleyma því að ég sé með svona bloggsíðu. Það er búið að vera mikið í gangi og mikið að gera síðustu daga. Kom aftur til Kolding aðfaranótt mánudags um hálf fimm leytið og vaknaði ferskur daginn eftir bara til að komast að því að það er nóg að gera í skólanum næstu 50 dagana eða svo. Ekki nóg með það heldur þarf ég að bomba mér útúr þessari blessuðu íbúð minni og selja allt mitt, ekki tek ég það með mér heim eða til London allavega, og síðan er ég kominn á fullt að finna mér einhverja brjálaða íbúð eða gott herbergi í central London þar sem allir ætla að koma í heimsókn og skemmta sér á minn kostnað ;) Já ég er ekki búinn. Einnig hef ég verið í sambandi við Baug um að koma mér í gang og kynna mér ýmsa hluti svo ég fitti betur inní jobbið, og það er alveg ný veröld að opnast fyrir mér þar. Þetta er einsog að vera í tvöföldu námi nánast, en reyndar hef ég mikinn áhuga á þessu og því bölva ég þessu ekki einsog hinu. Og dömur og herrar, ekki búinn ennþá. Handboltinn er ennþá með sínar 3 klst á dag (5 klst í dag reyndar) og er nóg af leikjum framundan sem ég verð að reyna að fitta inní prógramm af prófum og verkefnavikum.
Var að koma frá Aarhus þar sem vængbrotið lið okkar tók á móti heimamönnum. Það eru mikil meiðsli hjá okkur og leikstjórnandinn okkar var víðs fjarri, með Finnska landsliðinu að toura. Jæja, við tókum það til bragðs að láta þjálfarann spila hægra hornið, en hann er gömul kempa, og þá er gömul lykilorðið því hann er allt nema lunkinn lengur. Við erum að tala um að þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í boltanum var Jesú frá Nasaret að berjast um sömu stöðu og hann, með alveg deadly vinstri hönd hefur maður heyrt. Sneri hann bakvið eyrað á markmönnunum. En aftur í leikinn. Við byrjuðum vel og héngum í þeim með aðeins einn skiptimann á bekknum, nota bene markmann! Seint í fyrri hálfleik fékk þjálfarinn okkar beint rautt spjald í stöðunni 16-14 fyrir þeim og því þurfti að henda varamarkmanninum í treyju og inná! Jæja við héngum í þeim þar til í byrjun fyrri hálfleiks þegar þeir fóru að taka mig og skyttuna okkar úr umferð og við það riðlaðist spilið og þeir unnu að lokum með 5 mörkum, 32-27 í Atletion Arena í Aarhus. (Hvað eru mörg A í því?) Ömurlegt að tapa, en ég átti góðan leik, var markahæstur með 8 og böns af línusendingum sem hefðu látið Óla Stefáns og éta hattinn sinn. Svo er ég líka hógvær.
Allavega margt í mörgu þessa dagana og ekkert að fara að róast neitt. Þemadagar, próf, Fifa 2006, handboltaleikir og Londonundirbúningur á dagskránni.
Bið að heilsa öllum og það var snilld heima á Íslandi, gaman að geta hitt svona marga. Sjáumst hressari en Ómar Ragnarsson á prózaki með grænan hlunk í trúðabúning um jólin. Toppiði það!
4 comments:
Jesú var betur þekktur sem Nipparinn frá Nasaret, enda vel þekktur varnarjaxl, Þjálfarinn þinn eflaust enn með förin á geirunum. Gummi þú og hógværð passa ekki saman frekar en Ívar og stelpa,
Hvað þarftu að læra meira um bisnesssssss maðurinn sem hangir inni og lest allan daginn öss öss öss
píZ
p.s
ekkert a í því, en þónokkur í Atletion Arena í Aarhus
Gummi says:
já þó ég segi sjálfur frá, ég er einn af mínum upáhaldskokkum!
Gummi þú ert ekki hógvær:)
En já takk fyrir æðislega hittinga á klakanum, hlakka til að fá þig aftur heim.. sem er eftir 49 daga:)
eitthvað fóru þessir ,,æðislegu hittingar,, fram hjá mér en svona er þetta dularfullt..fólk er aldrei ánægt og alltaf að skapa sér einhver vandræði til að hafa eitthvað að tala um.
jæja pitti bara komin jólasnjór og styttist í jólaísinn og loftkökurnar..ekki tími til að vorkenna sér á meðan og vera hógvær núna..bara back into the buisness dude!!
Post a Comment