Make me rise an hour early
Fyrir rétt rúmu ári síðan átti ég að fara að keppa í handbolta. Ég bomba mér útí íþróttahús og Andreas félagi minn er þar mættur einnig. Við erum tímanlega í því, einbeitingin góð og ekkert stress á okkur. Bíðum eftir hinum strákunum. Þegar klukkan slær í mínútuna sem mæting átti að vera á erum við enn bara tveir að bíða, Guðmundur og Andreas. Finnst okkur þetta heldur dularfullt svo ekki sé meira sagt. En fólk er auðvitað mis-stundvíst einsog það getur verið mishátt í loftinu (Elli Joð vs. the people) og við héldum coolinu. Þegar tíu mínútur liðu í viðbót fórum við að hringja og grennslast fyrir um þessa undarlegu mætingu. Hvað haldiði nema við höfðum verið X-aðir. Vorum fórnarlömb í sjónvarpsþættinum The Jamie Kennedy experiment. Hef aldrei verið jafn hissa á ævinni.......
.... ef við snúum okkur aftur að raunveruleikanum þá var þetta Daylight Savings Time að verki, eitthvað sem við Íslendingar þurfum ekki að hafa áhyggjur af því við erum einfalt fólk með einfalt tímasystem. Án þess að hendi væri veifað færðist tíminn aftur um klukkutíma, sem er soldið fyndið finnst mér. Í dag breyttist tíminn svo aftur hjá mér, færðist afturábak (einsog Óli grís þegar hann datt af baki) um einn klukkutíma. Þetta veldur því að ef maður stillir ekki klukkuna sína þá mætir maður klukkan 7 í skólann á morgun. Með líkindareikningsmódelinu sem Ívar smíðaði úr bréfaklemmum reiknaði ég út að það eru 93% líkur á að Ívar eigi ekki eftir að frétta af þessari breytingu, því ekki mun hann frétta það frá mér svo mikið er víst. Kannski kuldi að setja þetta inná síðuna mína, en hann les hana hvorteð er ekki reglulega. Ég mun segja ykkur frá hvernig fer með þetta alltsaman! Er Ívar músin sem læðist....
Átti leik í gær, töpuðum naumlega, með aðeins 3 mörkum. Þetta er ekki alveg að smella hjá okkur, erum auðvitað fáir og ekki með skiptimenn þannig að í seinnihálfleik erum við að missa aðeins kraftinn sem er óþolandi. Liðin sem við erum að spila á móti hafa vanalega nóg af ferskum löppum á bekknum og keyra á okkur í seinni hálfleik hraða miðju aftur og aftur til að þreyta okkur. Það hefur virkað í síðustu 2 leikjum. En ég hef verið að spila helvíti vel, hef verið leikstjórnandi og skytta og setti 7 í gær og var virkilega sáttur með spilamennskuna, opnaði vörnina oft og átti ekki færri stoðsendingar heldur en mörk. Núna eftir að hafa verið markahæstur í 2 leikjum og spilað vel er ég farinn að banka vel á dyrnar hjá aðalliðinu, vona að þjálfarinn gefi tækifærið núna því ekki á ég langan tíma eftir hérna.
Lærdómurinn er að öskra á mig núna... endilega kommentið, alltaf gaman að heyra í fólkinu á götunni. Talandi um fólkið á götunni. Konur eru að berjast fyrir því að fá hærri laun, vilja svo taka upp kvennafrídag. Þarf maður ekki að mæta í vinnuna til að fá borgað? Pæling. Og líka hvað yrði gert ef karlar myndu hætta vinnu og færu í skrúðgöngu með skilti og 17 júní þyrlur og flautur og myndu taka upp karlafrídag? Er það kannski karlremba?
3 comments:
nei gummi það heitir einfaldlega gay pride og er löngu byrjað ...ef kallar eru með skilti og veifandi í drottnigarstíl þá er það pottþétt superpuffs having a girls night out eða day..whatever!! En já farðu nú að pressa á þessa bjórvembisþjálfara og fara í the real team..þýðir ekkert að spila með retardeds all the time þó það sé gaman..og pínu krúttlegt!!
En spurning um að þú join hands með your only family og hjálpir okkur að bring muriel back home before christmas...endilega gefðu henni smá push og reyndu að vera sannfærandi svo hún vilji koma í jólaísinn og sjá um þrifin heima fyrir jól ;)
Gangi þér svo vel með lærdómin og lærðu einsvel og þú getur..því það er það eina sem þú getur ;) hahaha eða kannski ekki alveg en þetta var samt fyndið..eða kannski ekki!
kiss kiss og take care now bye bye then
Hæ hæ gaman að þessum tímamismuni!!! Þetta var líka að breytast náttúrulega hérna hjá okkur í Þýskalandi og ef að Claudia ljósmóðirin sem kemur til okkar hefði ekki látið okkur vita þá hefði Þórir verið klukkutíma of snemma í því núna í dag!!!!
Þetta er alveg ótrúlegt hvað enginn er látinn vita...
En gaman að heyra að það gangi vel í boltanum, ég held að Þórir sé aðallega með rasssæri eftir að hafa komið hingað ;) hehe Ekki vanur að sitja svona mikið á bekknum...
Trikkið á Ívar gekk ekki því aldrei þessu vant fór hann inná síðuna mína og las bloggið. En hann ætlaði að vera sniðugur og læddist inn til mín meðan ég var fjarverandi sama kvöld og stillti klukkuna mína aftur tilbaka um klukkutíma, til að leika sama leikinn á mig. Það varð mér til happs að ég vaknaði við klukkuna á símanum mínum en ekki vekjaraklukkunni, en hún datt í gólfið um leið og ég vaknaði og því var grínið hans Ívars út um þúfur, alveg einsog mitt grín!
Mikið grín á okkur hérna. En Sólrún það eru líka lesbíur í gay pride, og shemale ef við förum útí það. Og stöðumælaverðir.
Post a Comment