"They call me Superman...
... leap tall hoes in a single bound, I'm single now. Got no ring on this finger now, I'd never let another chick bring me down in a relationship..." Yea right.
Þetta er búin að vera meiri helgin. Á fimmtudag var skóli og handbolti og svo heim að leiðast. Á föstudaginn fórum ég, Hreiðar og Ívar á Jensen í veislumat og röltum svo í Noma-partý (margmiðlunarskólinn í Kolding) en þar var mjög góð stemmning almennt og fólk vel í djammgírnum. Ég og Hreiðar vorum hinsvegar í einhverjum aulafílíng og í hvert skipti sem partýið æstist upp flúðum við inní eldhús, en það vildi aldrei betur til en svo að þá mynduðust alltaf eldhúspartý sem við þurftum svo að flýja líka. Klukkan 12 röltum við svo heim sáttir og létum Ívari það eftir að halda uppi heiðri Business-skólans í þessu partýi. Enda kandídat sem við máttum vera stoltir af.
Á laugardaginn vaknaði ég hress og ferskur og fór á lyftingaæfingu með honum eiturhressa Thomasi Munk-Andersen, leikmanni Skanderborg með meiru, og við félagarnir tókum aldeilis á því. Ég er ekki frá því að þetta sé eitt besta forvarnarmeðal sem ég veit um. Eftir 2 tíma af þreki og lyftingum skreið ég heim alveg orkulaus. Fann þó orku í að taka strætó á enska pöbbinn og horfa á England - Austurríki, fékk mér öl og lummu og svo heim aftur. Alveg útúrkeyrður bombaði ég mér uppí rúm, horfði á Freddy got Fingered sem er ein versta/besta mynd sem ég hef séð síðasta hálfa mánuðinn.
Í dag tók ég daginn snemma, um 10 leytið var ég rocksteady á fótum, fór útí búð að versla og svo bombaðist ég í hlaupagallann og tók sprettinn útí íþróttahús, lyfti þar í ca. klukkara og hljóp svo til baka. Ógeðslega gott plan hjá mér. Eftir þetta var ég góður og orkulaus og gerði ekki meira í dag nema hanga í tölvunni og horfa á handboltaleik í sjónvarpinu. Einhæfi gaurinn.
En annars er ég alveg að smella í Ísland. Hlakkar orðið mikið til enda er Danmörk að virka meira og meira einhæf á mig. Eða þá að ég sé að verða meira og meira einhæfur. Vona að þessi ferð verði góð, ætla að hitta alla vini og fjölskylduna, kíkja á Airwaves og halda mig utan við allt rugl takk fyrir. Er að verða nettgeðveikur stundum. Einhverskonar Patrick Bateman er að finna sér bólfestu í mér, djöfull verð ég góður þá.
Ætla að sökkva mér í lærdóminn og ruglaðar æfingar þangað til 14:00 á fimmtudaginn, þá fer ég heim úr skólanum, pakka og bombast útá Kastrup lufthavn. Úff ég er farinn að sjá Ísland í hyllingum...
1 comment:
4 DAGAR PEYJI....okey og ég ersko með plan fyrir alla dagana frá 8 á morgnanna til 12 á kveldin...svo þú þarft að koma rassinum á þér úr þessum einhæfa gaur og think BIG!! Allrighty then..það verður pottþétt kjúlli idol og lárukaka með faminu, stællinn kenny og laugararúntur með mér og óska..jafnvel bíóferð ef þú ert heppinn..videodramakvöld a la muriel og bakaradrengsdagur með þurý og ömmu..skinkuhornin mmm..svo er það þetta usual pakkhús og austurvegsrúnturinn með gel í annari og öllarann í hinni..og hevrveit nema zoolander taki catwalkið í löngumýrinni..en já þannig að þú mátt leikavið vini þína milli 5 og sjö á þriðjudeginum eftir að þú kemur heim..nýttu tímann vel pitti..miss you..
Post a Comment