Hreiðar
einnig þekkur sem Hreddi, er nýjasti meðlimurinn á geðsjúkrahúsinu við Knud Hansens vej. Hann er Íslandsmeistari í Downloadi og hefur náð sér í dýrmæta reynslu í Danmörku, þar sem ótakmarkað download er daglegt brauð og 2MB tenging skilar manni langt. Hann er atvinnumaður þegar kemur að mönsi, og gott dæmi er það að hann hefur búið hér í 2 vikur en ég og Ívar í eitt og hálft ár. Á síðustu 2 vikum höfum ég og Ívar þó í fyrsta skipti farið á kebab-búllurnar í nágrenninu eða farið í svonefnda "Möns-leiðangra", þar sem við þræðum "the mean streets of Boston" niðrá bensínstöðina Q8 og kaupum okkur nammi. Þessu hefur Hreiðar áorkað á ótrúlega skömmum tíma. Hann sjálfur státar sig af því að hafa verið orsakavaldurinn af offitu vina sinna, og þeir hafi allir grennst eftir að hann flúði Ísland. Ég verð að segja að ég er alls ekkert hissa.
Í gær fórum við á Jensen, sem er veitingastaður niðrí bæ. Þar er hægt að fá bestu rif í DK, og kaupa svona "All you can eat" skammt. Þá fær maður eins mikið af mat og maður getur í sig látið. Við höfum gert þetta nokkrum sinnum vinirnir, og alltaf náð á 3 skammt, sem er helvíti vel að verki staðið. Í gær var hinsvegar farið með því markmiði að sigra staðinn, einsog ég og Brynjar gerðum á KFC hér um árið. Í gær vorum við búnir með 3 skammtinn, og var ekki mikil löngun í meiri rif hjá neinum okkar. Ég stóð upp, brýndi raustina og þrusaði yfir borðið einsog Mel Gibson í Braveheart: "Ágætu Piltar! Við höfum komið hingað reglulega á Danmerkurdvöl okkar. Nú er innanvið mánuður eftir, og ég spyr ykkur. Ætlum við að fara frá landinu án þess að geta sagt barnabörnunum frá því að við höfum torgað fjórða skammtinum á Jensen? Við getum hér með hefnt fyrir meðferð danska réttarkerfisins á Jóni Hreggviðssyni snærisþjófi, hefnt fyrir 14-2 tapið í Parken, hefnt fyrir einokunarverslunina!! Það er núna eða aldrei piltar. Upp með matarlystina, upp með gafflana, niður með rifin!!! Étum Jensen útá gaddinn!"
Í þeim töluðu orðum kom þjónustukonan með fjórða skammtinn á borðið og hann hvarf einsog peningarnir hjá Gjaldkera Símans. Við höfðum sigrað fjórða skammtinn í fyrsta og síðasta skiptið. Við gengum stoltir frá borði, okkur svimaði og var illt í maganum, en vorum sigurvegarar kvöldsins. Reyndar var kvöldið ónýtt því við enduðum allir heima uppí rúmi sofandi um 1 leytið því öll orka líkamans fór í meltinguna. En við sigruðum engu að síður.
4 comments:
Þið eruð Íslandi, íslendingum, forsetanum og almúganum mikið stolt.
Það gleður mig að heyra af þróttmiklum einstaklingum á erlendum slóðum. áfram ,, áfram
Þið báðuð samt ekki um auka franskar eins og við gerðum forðum þegar við átum á við heila vísitölu-fjölskyldu!?
P.s. mig minnir líka að einhver ónefndur hafi ælt fyrir aftan Fossnesti!?
Málið er samt, að strategían til að ná á 3 skammt er að borða ekki frönskurnar líka á Jensen.
En við vorum búnir með nokkrabjóra fyrir matinn og þegar rifin voru búin, þá mönnuðum við allar frönskurnar meðan við biðum eftir næsta skammti.
Einhver hringi í Guinness book of world records.
Loose [url=http://www.invoiceforyou.com]invoice online[/url] software, inventory software and billing software to conceive professional invoices in minute while tracking your customers.
Post a Comment