já
Manchester United hafa nú tekið við Liverpool í því að tapa og tapa og tapa. Liverpool halda áfram sigurgöngunni í Champions League og hafa tekið við Chelsea við að vinna í deildinni, sem hafa tekið við Arsenal við að ganga brösulega.
Skólinn búinn að vera að bæta á sig aðeins. Ég búinn að vera að reyna að saxa aðeins á verkefnaforskotið sem hann hefur á mig og gengur það fínt.
Fékk í dag fullt af skjölum frá Baugi svo ég geti byrjað að kynna mér fyrirtækin í þeirra eigu í Bretlandi og kynnast uppsetningunni á gögnunum sem ég kem til með að vera að vinna með. Allt mjög fræðandi og skemmtilegt finnst mér, gaman þegar þetta tvennt fer saman.
43 dagar í að ég komi til Íslands.
Fáum nýjan leigjanda á morgun. Hann heitir Hreiðar og er okkur velkunnur enda með okkur í bekk. Hann lenti í smá veseni með leigufélagið sitt og ætlar að eyða síðustu dögunum í DK á Knud Hansens vej, þar sem blómin blómstra allan ársins hring. T (eða Tæ einsog Billi segir) er það lítið hérna með okkur þar sem hann býr líka í Aarhus og flytur sig bara vinsamlegast út og notar sófann ef honum vantar gistingu. Allir vinna, nema auðvitað United.
Peter Crouch er 202 á hæð og rúm 75 kíló, ég hélt að það stæði í einhverri bók að það væri bannað?
10 comments:
Já segðu maður Manchester er hið nýja Liverpool og Liverpool er orðið hið nýja West Brom
Mér finnst reyndar West Brom ekkert spes, en ef þú hefur tröllatrú á þeim þá tek ég það ekki frá þér.
Jæja núna er ég með tölvuna útaf fyrir mig á meðan sólrún er inni á klósti að syngja my baby my bjútí my boííí og ég var á diskói áðan í féló og það voru bara stelpur uppi að dansa og strákarnir voru bara í billjar og pleisteijon. þetta er fín síða hjá þér og gangi þér vel með hana og mundu að skrifa líka ionná hjá mér.
kossar frá mér og bæ
Nei en West Brom er eins og livepool að berjast um fallsæti
Óli,, ekki svona bitur..
Ívar skiptu þér ekki af...
Er einhver biturleiki á milli þessara gaura?
Eitthvað drama í Kolding?
Það er spenna.
Hef heyrt að þeir ætli að útkljá þetta í hringnum!
engin biturleiki bara afskiptasemi ;)
þetta verður útkljáða pöbbnum enda vita allir hver vinnur þar
Post a Comment