Thursday, November 10, 2005

Prufuprófið búið og gekk það vel. Mér tókst að hrista 11 bls framúr erminni í þessu 6 klst prófi um Sterling flugfélagið, þar af voru rúmar 3 sem ég hafði undirbúið áður með þessum frumgreiningum sem alltaf koma sér vel. Búið að vera frí í skólanum síðustu 2 daga og m.a. var hjálpað Óla og Mæju að flytja dótið þeirra inní bíl og síðan var það flutt til Aarhus. Alveg stappfullur flutningabíll hjá þeim af búslóð, eitthvað annað þegar ég flyt útúr minni en þá verður það kannski einn kassi af dóti sem ég tek með mér!

35 dagar og counting einsog crows sem gerðu Mr. jones frægt hér um árið og Stefán Ármann er að covera í söngkeppni F.Su. í þessum töluðu. Ég ætla að spá honum sigri enda gott lag og góður maður. Langar nett að fara enda bara góðar minningar af þessum söngkeppnum, þó sér í lagi síðasta skipti sem ég fór því þá tók ég þátt ásamt 7 öðrum dónum. Vorum villtir með Skímó og Y.M.C.A. í löggu-,slökkviliðs-, smíða- og dónagöllum uppá sviði og lýðurinn trylltist.

Er að fara að skrifa ritgerð um Franska markaðinn nú í næstu viku ásamt hópnum mínum sem er samansettur úr:

Yaroslav: 23 ára Úkraínubúi sem við héldum að væri morðingi fyrsta árið eða alveg þangað til að við heyrðum hann hlæja að eigin bröndurum. Þó að maður skilji ekki brandarann hlær maður samt, því að miðað við hvað hann skrækir og jóðlar hlýtur þetta að vera eðalstöff.

Tenna: ca. 25 ára "dansk pige" sem að hefur bakgrunn úr ferðaiðnaðinum. Stefnir á að vinna í ferðaiðnaðinum eftir námið. Talar ensku með dönskum hreim en annars fer lítið fyrir henni.

Thomas: 28 ára dani sem lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 17. Er ofviti og hagar sér sem slíkur. Spilar Civilization í tímum, raular Star-Wars þemað og fer á geimráðstefnur reglulega.

Alma: Enginn veit í raun hvað hún er gömul en hún er að taka þetta nám í 3 skiptið. Sögur eru um að danska ríkið hafi í samstarfi við skólann ákveðið að hleypa henni í gegn í ár vegna þess hvað "SU-ið" hennar er orðinn of stór kostnaðarliður fyrir danska ríkið (SU er styrkur sem danir í skóla fá). Hún er vanalega skilinn eftir þegar bekkurinn skiptir sér uppí hópa því ómögulegt er talið að vinna með henni. Áður fyrr var hún þó ekki jafn óvinsæl og var henni m.a. hleypt með á örkina hans Nóa.

En þetta er þotuliðið sem ég mun vinna með í næstu viku, gangi mér vel! Annars er maður aldrei sáttur með sinn hóp í svona þar sem maður er mannhatari í eðli sínu.

En ég nenni ekki meiru. Held að enginn nenni að lesa svona fíflalæti um skólann, en þetta er bara það eina sem ég hugsa um orðið. Skólinn og hvað ég er mikið fífl.

4 comments:

Anonymous said...

"Ég þekki þennan gaur ég þekki hann"

Anonymous said...

mér finnst gaman að lesa bloggið þitt..þú segir svo skemmtilega frá..en 11 bls..mætti halda að þú værir skyldur "ATH SKYLDUR" kollu big m og gróu gremlis..þarna kemur málflæðið sér vel pitti!! En hvenær kemuru heim!

Gummi said...

Ég er að setja stefnuna á 15. desember. Það er happatalan.

Anonymous said...

shit 11 (ellefu) bls er ekkert smá maður djöfulsins ofsi ertu :)
Gummi takk fyrir hjálpina, spurning að opna maís dós og skella búslóðinni þinni ofan í og senda með pappakassaskipi til Íslands ;)

pitti?!? er tinni aðdáandi eða bara svona rosalega skemmtileg týpa?