já
Enn eitt bloggið í safnið sem heitir "já" en mér þykir það vera fullkomið heiti þar sem það er einfalt og jákvætt.
Bætti inn link hér til hægri þar sem góðir gestir geta sent mér sms alla leið til Danmerkur. Hvet ég sem flesta til að henda á mig línu, hvort sem ykkur líkar við mig eða ekki. Alltaf gaman að fá skilaboð frá ókunnugum, eða nafnlaus skilaboð frá vinum þar sem þeir tala illa um mann.
Fór á enska í gær með Óla, Hreiðari og Ívari og Doddi kom svo seinna og horfðum við á England vinna Argentínu og drukkum nokkra volga með. Svo var kíkt í partý hjá Ísaki í Noma en það var heilagur Ísaks dagur oftar sem áður. Þar var ýmisleg vitleysa gerð einsog þegar við sáum "pissestif" danskan gaur, semsagt mökkölvaðann leggjast í aftursætið á bilnum sínum og æla útum hurðina. Við gátum ekki látið grey manninn í friði svo við fórum á hristum bílinn hjá honum og ég ætlaði ekki að verða eldri þegar ég sá svipinn á honum. Svo fór hann að rífa kjaft seinna og vera með læti en það var ekkert annað hægt að gera nema hlæja að honum hann var svo fullur. Einnig var Ívar í essinu sínu þetta kvöldið og var hann á djamminu framundir morgun, var að skríða á fætur núna klukkan 7 um kvöldið. "Þú varst fullur á Pitstop.... Ferskur"
Er að fara að skrifa ritgerð um efnahagsástand Frakklands. Ætla að bombast í það. Sendið mér sms ef þið sjáið EllaJoð.
4 comments:
..bíddu er minn að fiska eftir smsum frá fans sem sitja um þig á msn og einstæðum mæðrum sem eru á leiðinni í snyrtifræði..pitti það þarf svo að slá grasið..eða frekar sópa stéttina!! 15 er the new happy pits day..bíð spennt með láruköku og skinuhorn extra ham..kiss kiss og passaðu þig á ívari!
Hæ.
Einhver sendi mér sms með mikið af fucking orðum. Ég gruna Ella Joð hér með formlega.
Hann hefur frest framtil 15. desember til að áfrýja úrskurði héraðsdóms, en þá get ég afturámóti vísað ákærunni til hæstaréttar.
Ég áfrýja.
Post a Comment