Monday, November 21, 2005

Meiri vitleysan alltaf

á manni. Kom heim úr skólanum í dag, alveg uppgefinn eftir lítinn svefn í nótt sem orsakaðist af því að ég fór seint að sofa kvöldið áður. Jæja, ég henti mér uppí rúm og svaf frá mér lífið. Núna er klukkan að ganga 2 og ég er ekkert á leiðinni að sofna! En já, vaknaði klukkan 22 og ákvað að fá mér ekki að borða, þó svo að ég væri ekki búinn að borða allan daginn. Ástæðan fyrir því var auðvitað bara hversu latur ég er, nennti ekki að elda neitt. Var að pæla í disk af Coco Pops sem er fljótlegt og átakalaust, en eina mjólkin sem var til í ísskápnum rann út þann 16. nóv, þannig að ég setti hana bara aftur inní ísskáp. Prófaði um daginn að nota vatn og það var ekki eins gott og ég vonaði. Reyndar fór ég útí búð í dag, en ég er bara alltaf svo skipulagður hvað varðar heimilisstörfin. Í staðinn fyrir að kaupa mér mat til að borða með munninum þá keypti ég mér 4 stk af Newcastle Brown Ale til að eiga fyrir champ. league í vikunni, og svo 2 stk af Dr. Pepper því ég gat það og mátti það. Ræð mér sjálfur ef svo má að orði komast.
Fékk í dag útúr 2 hlutum af 3 í prófi sem ég tók fyrir 2 vikum síðan um Sterling flugfélagið. Gekk fínt 10+ í marketing og 10+ í economics. Fæ útúr Business law á morgun og þá er ég kominn með heildareinkunn, en ég fell ekki úr þessu fjandinn hafi það. Líður semi einsog ég sé að monta mig, og ef svo er, þá er ekkert sem neinn getur gert í því svo bara sleppum því.
Fékk "hljóðbók" hjá Hreiðari í gær sem kallast "Freakonomics". Eitt af downloadafrekum hans. Þetta er algjör snilld verð ég að segja. Útskýrir fyrir manni mikið af óþarfa hlutum frá hagfræðilegu sjónarmiði, einsog t.d. "Afhverju búa flestir krakkfíklar enn hjá mömmu sinni" og fleiri fáránlegar pælingar.
23 dagar í "homecoming". Einn og hálfur mánuður í London.
Er það spurning um að hætta þessu flakki og flytja heim, fá vinnu á Arnbergi við að selja ís og dæla blýlausu í kuldavettling? Það hefur allavega sjaldan hljómað jafn spennandi þar sem mig langar orðið djöfull mikið heim!
En djöfull eruðið samt frábær!

5 comments:

Anonymous said...

Jæja pitti minn...þurfum við núna líka að fara að senda þér mjólk..össs!! Eins gott að amma lesi þetta ekki, hún myndi senda lalla að sækja þig. Til hamingju með 20++, ég er að rifna úr monti af litla pitt..þetta geturu! Þú getur bókað að það bíður eftir þér feitur supplies þegar þú kemur heim hehe..bíddu bara!! Goodtimes ;)

Anonymous said...

Ég mæli með því að þú kíkir á þetta. Þið Ívar gætuð æft ykkur í þessu til þess að drepa tímann.
http://www.meatspin.com/

Gummi said...

Takk Brynjar... mér líður betur núna.

Án gríns þá hló ég ekki, ég leit ekki undan, ég bara undraðist!

Áður en ég gat dregið andann var ég officially gay!

Takk Brynjar.

Anonymous said...

Í alvöru Brynjar? Hvar finnuru þennan sora..?!

Shit..

"you spin me right round baby, right round.."

ojj

Anonymous said...

ojj ég er hommi..spurnig um samt að sá sem setti þetta inn sé superpuff..öss