Friday, December 02, 2005

Bambus

Lífið gæti alveg verið betra. Ég var að keppa áðan og við töpuðum með einu marki. Hrikalega svekkjandi alveg. Ef við hefðum unnið þá væri ég ekki eins svekktur og lífið væri betra, eruð þið að ná þessu ferli? Var það ekki Mr. Proper ultra sem elskaði verkin sem maður hatar? Er að pæla í að láta hann þvo af mér fötin mín og versla inn í matinn. Annars fannst hann mér alltaf frekar hommaleg týpa í auglýsingunum, svona kall á fertugsaldrinum, krúnurakaður og með eyrnalokk. Svona útbrenndur sjóari sem hætti á sjónum til að geta eytt meiri tíma með kærastanum sínum og fékk svo vinnu við skúringar á Landspítalanum. Annars örugglega fínn gaur, samt algjört fífl.

Er að horfa á 4. seríu af The Apprentice, sem er eini þátturinn sem ég hef þolinmæði í að horfa á því mér finnst ég læra af því að horfa á hann, hversu sjúkt er það? Einhver að hringja í Patrick Bateman og segja honum að það sé kominn gestur...... AAAAllavega, í þáttunum eru kallar á móti kellingum, en kellingarnar voru búnar að tapa svo oft og illa að þær máttu velja sér einn úr kallaliðinu til að vera í sínu liði. Og þær völdu eina svertingjann úr karlaliðinu svo hann "switched sides" einsog Elton John í den. En það fyndna við þetta allt er að kallarnir unnu enn og aftur, og fengu í verðlaun að gera rapplag með Wycleaf Jean, sem var einmitt í Fugees. Lagið hjá þeim minnti mig á eitthvað á milli Sveittra gangavarða og Jóhönnu Guðrúnar. Skelfilegt einsog Tryggvi hefði orðað það. Og ég veit alveg afhverju þetta var svona skelfilegt. Þeir höfðu nýlega misst svarta manninn sem hefði án efa rokkað mækinn einsog AJ (ei-djei) í brekkusöngnum.

Djöfull er ég duglegur bloggari samt. Ef ég myndi taka til í herberginu mínu í hvert skipti sem ég myndi blogga........ þá myndi ég sennilega bara hætta að blogga.

5 comments:

Anonymous said...

Af hverju heitir bloggið Bambus?

Gummi said...

Afhverju ekki? Annaðhvort það eða Babar, sem var sterkur kandídat.

En Bambusinn varð oná og sé ég ekki eftir því.

Anonymous said...

Krullubambus

Anonymous said...

jæja peyji..lalli johns var ekkert smá happy með afmógjöfina og bara goodthings..rosaleg veislaeons og við mátti búast..silla b dró hjvern réttin á fætur öðrum upp úr brjóstaskorunni..mmm!! 12 dagar

Gummi said...

Sólrún þú ert dóni.