Monday, December 05, 2005

...

Við sambýlingarnir ætluðum að fagna próflokinu okkar á laugardaginn. Fengum okkur áfengi að drekka með munninum og fórum svo niðrí bæ í íslendingapartý. Þegar maður drekkur áfengi þá verður maður vitlaus í höfðinu, og ég sérstaklega var hálf kjánalegur. Sat rólegur með drykk í hönd þegar ónefndur aðili kom aðvífandi með staup handa mér og manaði mig í að taka þetta. Ég er auðvitað gífurleg hetja af heljarmannaætt og eitt svona staupglas ætti að vera "lítið mál" - fattiði. En hversu lítið mál er að drekka 50/50 blöndu af Tequila and Tabasco, ég leyfi mér að kalla það TnT allavega. Fjandinn ég beit á jaxlinn, sveið í kjaftinn en hélt engu að síður coolinu, enda miklu að halda brúmmtiss. Hálftíma síðar var ég þó orðinn töluvert kjánalegur af þessum drykk og ákvað í samráði við landlækni að halda heim á leið og hálftíma síðar lá ég rotaður uppí rúminu mínu. Eftir hrekkinn með innbúið hans Ívars um daginn (Cuntjuice.tk) hefur verið ansi mikið prakkara-andrúmsloft á Knúti, og þegar Hreddi og Ívar skriðu heim síðar um nóttina átti að hrekkja mig. Þar sem ég lá varnarlaus, klæðalaus og rænulaus uppí rúmi komu þeir aðvífandi félagarnir, á Evuklæðunum einum saman og lögðust uppí til mín. Þar sem þeir lágu báðir hjá mér, héldu utanum mig og hlógu sig máttlausa í áfengisgleðinni tókst þeim ómögulega að vekja mig. Ég var hristur og sleginn, kreistur og kysstur en aldrei vaknaði kallinn. Ég prísa mig sælan, ég held ég hefði aldrei boðið þess bætur ef ég hefði áttað mig á þessum aðstæðum sem ég var kominn í. Ég fékk að heyra söguna daginn eftir og þá henti ég mér í sturtu og kveikti í rúmfötunum, síðan tannburstaði ég mig.

En ég er að fara að læra undir próf núna. Heimilisfræðipróf á morgun, svo beint í Tónmennt. Á miðvikudaginn fer ég í Matreiðslupróf. Á föstudaginn er mitt síðasta próf sem er í Kristinfræði. Ég held ég sé 90% viss um að ég sleppi við prófið í Smíði því ég er kominn með svo góða stjórn á brennipennanum.

Wish me luck...

6 comments:

Anonymous said...

dónastrákar sem þú býrð með..en þú veist hvernig þetta er, ert hálfgerður hænuhaus og já algjör stelpa þegar þú drekkur..en tónmenntin..þú þarft að læra vel fyrir hana..ert alls ekki með gott tóneyra;)

Anonymous said...

Ertu nokkuð búinn að lesa yfir þig?

Gummi said...

Ég held það svei mér þá!

Held það sé kominn tími á Apprentice.

Anonymous said...

Ég held að einhverft fólk geti ekki lesið yfir sig, eða er það nokkuð Dustin?
Maze

Gummi said...

Ég hef aldrei heyrt það áður Maze-i. En takk fyrir að deila þinni persónulegu reynslu með okkur hinum.

Ómetanlegt að skyggnast inní hugarheim annarra.

Anonymous said...

Sjálfsagt mál..
Maze