Thursday, December 08, 2005

"A coward's tackle"


Voru orð sem Jamie Redknapp fyrrum leikmaður Liverpool notaði um tæklingu Michael Essien á Dietmar Hamann í leik Chelsea og Liverpool á þriðjudeginum síðastliðnum. Ég er meira en sammála honum. Eftir að hafa séð þetta í slow motion aftur og aftur og frá nokkrum sjónarhornum finnst mér gjörsamlega óskiljanlegt hvað maðurinn er að hugsa. Hann stígur svo langt yfir boltann að hann er ekki einusinni á leið til hans lengur, heldur bara setur sólann beint í hnéð á Hamann sem auðvitað steinlá. Hann hélt að ferillinn væri á enda, einsog reyndar fleiri sem sáu þetta. Löppin á honum var öll blá og rauð en sem betur fer óbrotin, enda er Hamann gerður úr þýsku stáli og hefur meiri reynslu í tæklingum heldur en Tóti Ingólfs.
Hann hefur núna verið kærður fyrir þessa tæklingu og fær væntanlega bann í kjölfarið, 3 leikja segi ég. Ég er þó með mun betri refsingu fyrir manninn. Láta rassskella hann á Trafalgar Square fyrir framan almenning, þá myndi hann læra sína lexíu, og allir hefðu gaman af í þokkabót.

2 comments:

Anonymous said...

heyr heyr og svo er stórfrétt núna að Essien hringdi í Hamann og baðst afsökunar og sagði að baki þessu væri enginn ásetningur....Húmbúkk mætti halda þeir læra rússneska taktík hjá Chelsea drepa og segja "sorry my tackle not mean bad, just heat of game da da let's have some vodka and shake legs"
Bleyður fremja svona tæklingar og þær eiga bara heima hjá Arsenal sem er eina liðið sem er fullt af bleyðum og stjórnað af einni ef út í það er farið, með versta agaferil allra liða í ensku deildinni. Meira segja svo slæman að Vinnie Jones (sem var þekktur fyrir að tækla 15 ára ungliða á æfingum hjá Wimbledon í denn ) sagði að þetta væri nú farið að ganga út í öfgar
pooh á Arsenal og Pooh á Essien og pooh á Mourinho

Anonymous said...

Ég er sammála herra Guðmundi. En kanski væri betri refsing að skella honum í 2. vikna vist í tugthúsið og bjóða honum síðan samning í kickboxi. Þar á þessi strákur heima. Sem sagt, honum yrði riðið í rass og svo fengi hann væntanlega einhverja launalækkun í kjölfar greinaskiptingar. En eitt er víst, hann væri örugglega ágætur í kickboxi