Danmörk bæ
Frekar skrýtin tilfinning. Búinn að henda öllu oní tösku, henda sumu, gefa sumt, selja sumt. Síðasta handboltaæfingin búin. Síðasti skóladagurinn búinn. Á morgun er síðasta prófið sem tekur aðeins 25 mínútur, fyrirlestur og svo smá vörn á ritgerð. Eftir það verður hoppað í lest til Köben með Hreiðari og Ívari og við munum eyða síðustu nóttinni á hóteli í Köben, þar sem við fljúgum allir snemma á fimmtudaginn. Ég og Hreiðar til Íslands, Ívar til Grænlands.
Annars er búið að vera mikið um reddingar í dag! Ég var að pakka niður, sá framá að ég væri með svona 30 kg í yfirvigt! Það reddaðist þannig að ég fékk að henda dóti í tösku og senda með búslóðinni hans Hreiðars, sem við keyrðum til Árhus í dag. Mega redding.
Einnig komst ég á tal við húsvörðinn í íbúðinni okkar, og hann tjáði mér það að ég gæti skilið mestallt stóra og þunga dótið mitt eftir í íbúðinni, svosem rúmið, fataskapinn og sófann í stofunni. Það heldur betur léttir undir vesenið. Mega redding þar líka.
Síðasta reddingin, og sennilega sú besta, er sú að ég er kominn með samastað í hinni nýju Borg Óttans, London! Og á engum smá stað líka, eina mínútu frá Paddington stöðinni, alveg við Hyde Park, dead central einsog maðurinn sagði. Ég er 20 mínútur að labba í vinnuna niðrá Bond street, eða helmingi fljótari með undergroundinu. Þetta er auðvitað snilld, ég var farinn að sjá fyrir mér 40 mínútna lestarferðir í byrjun og lok hvers dags! Ég mun leigja mjög fínt herbergi hjá ítalskri konu, eina herbergið sem hún leigir út hjá sér, og er stórt rúm og öll húsgögn í herberginu nú þegar, þannig að ég þarf bara að mæta á svæðið. Frekar mikill spenningur kominn í mig, að byrja að vinna einsog maður loksins! Þannig að þetta er án efa besta redding dagsins, þó hinar hafi ekki verið slæmar!
Einnig fékk ég gefins smá kveðjugjöf frá Thomasi vini mínum, Kolding handboltabúning, og engan venjulegan. Jesper Noddesbo klæddist þessum búning þegar þeir unnu meistaratitilinn nú í Maí.
Bið að heilsa...
4 comments:
Ég hef gríðarlega reynslu af því að leigja íbúð af ítalskri konu, Pálu enskukennara við FSU. Það var alveg stórkostlegt að leigja af henni íbúð því að hún er sanngjörn og geislar af kynþokka. En varúð, mánuði eftir að ég flutti út brann íbúðin. Læt hér fylgja með grein úr morgunblaðinu:,,Gagnasafn | fim. 6.10.2005 | Innlent | 78 orð
Eldur í kjallaraíbúð á Selfossi
MIKLAR skemmdir urðu en enginn slasaðist þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð við Háengi rétt fyrir klukkan 21 í gærkvöld. Þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn var mikill eldur í íbúðinni." Þannig að ég segji, farðu varlega vinur.
Takk Magnús, ómetanlegt!
ótrúlegt borg óttans laus við allar kempurnar
Hey Gummi.. verðum að fara að drífa í að hóa í fjöruborðsliðið og fá almennilegan hitting ;)
En gaman að segja frá því að ég er líka að flytja til London í febrúar :) verð aupair hjá íslenskri konu í miðri London!! er víst 10 mín að fara með strætó á Oxford Street... og 3 mín að einhverri tónleikahöll.. á samt eftir að komast að því betur hvar þetta er nákvæmlega! Kannski mar rekist á þig á röltinu ;p
Post a Comment