Sunday, January 22, 2006

Briefing from Sussex Gardens

Helgin:

Kíkti í afmæli og svo í smá Mojito á Met bar á föstudaginn eftir vinnu (sem á að vera barinn sem C. Ronaldo fór á eftir meinta nauðgun hér um daginn) gaman að því. Vinna nánast allan laugardaginn, í kringum miðnætti ákváðum ég og Höddi að beila á excel og ársskýrslum og taka mönnarann á þetta og borða til tilbreytingar, röltum niðrí Soho og fengum okkur Kenny. Svo húkkaði ég Talibana sem skutlaði mér heim, minicab.co.uk
Sunnudagurinn fór í að horfa á Liverpool tapa fyrir united, sem er aldrei gott. Var uppá skrifstofu til hálf níu og svo rokkaði ég undergroundið heim og fór í smá rólegheit. Aldrei óvinsælt.

Ég er kominn með nokkur góð "bresk" orð sem eru að laumast inní orðaforðann. "Quid" en ekki pound, wanka, twat, splendid, quite, frankly, fanny, arse og margt annað sem skreytir þetta. Annars er þetta ekkert yfirþyrmandi neitt, bara einsog að vera í enskutíma hjá Helga ketti (ekki Paolu því ég neita að skrifa undir það að hún tali ensku. Hún er svo illa menguð af sínu móðurmáli að þetta fer í einhverja mállýsku hjá henni, held að henni veitti ekki af enskunámskeiði sjálfri, það er ekki nóg að vera útlendingur til að kenna erlend tungumál).

Var að klára síðasta Apprentice í seríu 4... Randall rúllaði þessu, en ég þekki engann sem horfir á þetta sem er fáránlegt því Trumpinn er í fantaformi, hárið hefur aldrei verið jafn mikil sulta.

Jack Bauer er víst ekki dauður.

Djöfull er mikið ljótt sem mig langar að segja en ég geri það ekki... hringið bara ef þið viljið fá það, eða sendið mér póst, ekki e-póst heldur póst.

Ávallt hreinn einsog sápustykki... stickin' it like ducktape og-sa-videre.

Komum síðan Hljómsveitarleiknum í 400 komment!!

4 comments:

Anonymous said...

400? Ekkert bull you twat! Höfum það 500..

Gummi said...

okei... 600 þá.

Einhver að hringja í Valla Reynis.

Anonymous said...

pfft, why not a thousand you wankers, I got nothing waiting for me at home but a masturbating welshman,

og sammála Ívari takk fyrir að eyðileggja fokkings eina þáttinn sem ég átti eftir

Gummi said...

Ég sparaði ykkur downloadið!