Wednesday, January 18, 2006

How are you?

Ég er góður. Hef ekki verið mikið að gera annað en að vinna einsog sannur Íslendingur í víkíng (ekki samt í Egils víkíng) heldur meira svona í útrás, víkíng. Flott að vera kominn til London loksins, soldið annað en Kolding get ég sagt!
Þetta er stærsta blogg mitt hingað til því hér með færi ég titilinn "Borg Óttans" frá Kolding yfir á London, sem mun hér eftir bera þennan titil. Ekki skrýtið þar sem mun fleiri morð og fleiri pervertar per capita leynast hérna, Bretinn er ekki jafn ligeglad og Daninn, ónei. Ég hef komist að því að Bretinn flýtir sér alveg ofboðslega í vinnuna á morgnana en samt er ég alltaf mættur á undan. Fólk bókstaflega hleypur í og úr undergroundinu á morgnana og gerir sig að fíflum, ég rölti rólega, tek svona kvennagönguhraðann á þetta, og mæti alltaf 5 í 9. Það nefnilega fara allir jafn hratt í lestinni, sama þó þeir séu að flýta sér eða ekki.
Annars þá er íbúðin sem ég leigi hérna í fín, og þá staðsetningin sérstaklega. Ég er ekki nema rétt 10-15 mín á Oxford street að rölta, og vinnan 10 mín plús það niðrá Bond Street. Skrifstofan er mjög flott og ekkert til sparað, enda er Baugur ekkert á barmi gjadþrots neitt! *hóst*
Ég er með minn eigin lappa, síma, blackberry og ég veit ekki hvað og hef fengið nóg að gera svo ekki sé meira sagt, er búinn að vera til svona 22-02 á kvöldin að vinna og byrja alltaf 9 eða hálf 9. Það er eina ástæða þess að ég hef ekki haft neitt samband að viti eða hent inn línum hérna.
En tíminn flýgur bókstaflega hérna, 1 og hálf vika strax búin, bráðum verður þetta allt saman yfirstaðið og ég verð orðinn stjórnarformaður HSBC... aha! Svo fer ég bráðum að drífa mig á fótboltaleik hérna, og einnig þarf ég að tékka á tónleikum og þvíumlíku, loksins kominn í menningu einsog hún gerist best. Endilega ef þið vitið um eitthvað "on the horizon" give me a bell.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, endilega kommentið ef það er eitthvað sérstakt sem þið vijið vita, ef þið viljið kíkja í heimsókn eða bara segja eitthvað sniðugt.
Cheers...

3 comments:

Anonymous said...

Snilld að heyra loksins frá þér gamli.
Svo vil ég bara minna á Man Utd - Liverpool um helgina!!

Anonymous said...

Jæja peyji...mamma er farin að hafa nettar áhyggjur af litla workaholic stráknum sínum..já EINA stráknum sínum..
Passaðu þig á bílunum og LOOK RIGHT!!
Kem svo og kíki á þig í mars...oxford here I come..;)

Anonymous said...

bara að minna á leikinn í gær
rosalegt rugl en gott fyrir mína menn

réttlæti nær ekki alltaf yfir að ganga, ef svo væri hefði Gerrard fengið rautt og leikurinn endað 0-0

;)

Friður Jón Ásgeir ahhh. shit ég meina Gummi