"Fö-fö-föstudagskvöld...
... byrjar vel. Lendi inní partý hjá tattóveruðum gæja..."
Ekki alveg svo gott, og líka laugardagskvöld.
Hvað er að gerast?
Bond Stræti 135-137, 3rd floor og verið að reyna að vinna eitthvað.
Hvað er efst á baugi þessa stundina?
Að byrja á ritgerðinni minni sem þarf að skila sér til Danmerkur um miðjan Maí. Minnsta lagi 60 bls "bók" sem ég "byrjaði" á seint í vikunni. Nú er að duga eða.... klára þetta bara.
Eitthvað skemmtilegt að gerast um helgina?
Heldur betur. Ég og Höddi Klikk erum að pæla í að fara í kvöldmat, eigum pantað borð á KFC á Piccadilly Square, og það er sko einn sá fínasti staður hérna í London. Spennandi! (hmm)
Sáttur við Liverpool í dag?
Nei alls ekki, verðum að fara að skora mörk. Peter Crouch er líka ekkert að verða neitt fallegri á velli og það er áhyggjuefni. Fowler bætir það þó upp enda besti knattspyrnumaður Evrópu í dag.
Hvað er svo á dagskránni?
Auðvitað heimsókn í næstu viku frá Brynjari og Hillaranum. Síðan Arsenal - Liverpool á Highbury næstu helgi.
Eitthvað að lokum?
Nei veistu eigum við ekki bara að slútta þessu í bili. Bið að heilsa.
3 comments:
Birtist þetta viðtal í heild sinni í Sunnlenska?
Nú ert þú að rukka eða?
Já góða kvöldið ég er að rukka fyrir Sunnlenska, er Gummi við?
Post a Comment