Daglegt líf
7:30 - Vekjaraklukkan á símanum byrjar, snooze...
7:35 - Vekjaraklukkan á símanum, snooze...
7:40 - Vekjaraklukkan á símanum, snooze...
...
...
...
8:00 - Vekjaraklukkan á símanum, stop... fer á fætur, tannbursti, semi-sturta, föt, gríp símann, Blackberryinn og veskið, passa að lyklarnir séu í innri vasanum á frakkanum mínum, vinstra megin...
8:30 - Bomba mér út...
8:50 - Stíg útúr lestinni á Bond street, kem við á Pret og fæ mér samloku og köku ef mér finnst ég eiga það skilið (sem þýðir margar kökur í hverri viku)...
9:00 - Bond street 135-137, mæti í vinnuna, ræsi besta vin minn, tölvuna, og hef vinnudaginn meðan ég borða morgunmatinn minn...
12:00 til 17:00 - Á þessu tímabili borða ég hádegismat, fer allt eftir því hvernig verkefni dagsins raðast niður, hversu langt er í deadline, hversu hátt stresslevelið er á skrifstofunni og hversu svangur ég er...
15:00 til 19:00 - Á þessu tímabili finnst mér og Hödda ferlega nice að fá okkur Starbucks. Labba framhjá dyraverðinum honum Trevor, hann lítur á mig gegnum gleraugun, brosir svo það glittir í sótsvartar, kaffi og reykbrunnu tennurnar og segir: "Hi, you aiiiiight?" Ég svara honum alltaf bara með "Hi", neita að taka þátt í þessu "Good, good, how are you", þar sem ég veit að þetta þýðir svo sem ekkert hjá honum, honum er nákvæmlega sama um hvort ég sé "í lagi" eða ekki.
20:00 til 21:00 - Á þessu tímabili hef ég reynt að hætta að vinna síðustu vikuna, og þá byrjað að skrifa lokaritgerðina mína.
01:00 til 03:00 - Á þessu tímabili skríð ég vanalega heim til mín, raka mig, hendi mér í sturtu og uppí rúm. Þar sem ég fyllist mikilli orku við það að tannbursta mig tekur það mig að lágmarki klukkutíma að sofna, svo að hin tölvan mín bíður eftir mér heimavið. Eyði vanalega 30 til 60 mínútum í að eyða tíma á netinu, hlusta á tónlist og spjalla við hina næturhrafnana á MSN, sem þó gerist alls ekki oft.
Sjáumst jafnvel næstu helgi, páskar á Íslandi og ég læt sjá mig. Allir að taka frá föstudagskvöldið, hringið í Brynjar til að fá frekari upplýsingar.
Guðmundur - á eftir að sakna London-fársins!
2 comments:
þú verður að lay off the brushing, sérstaklega með colgate ég sver að það er laumu amfetamín í gangi þar, annars hljómar þetta skemmtilega (not) skil ekki svona álag, græðir ekkert á því, vera bara laid back in the DK ;)
Bretti
Post a Comment