Thursday, June 01, 2006

Bæ London

Síðasti vinnudagurinn hjá mér á morgun. Frekar skrýtið að þetta sé búið, og maður eigi ekki eftir að gera þessa hluti sem maður hefur gert nánast daglega síðasta hálfa árið, næsta árið allavega. Framundan er vinna í sumar á Íslandi og síðan skóli í 1 ár í viðbót, eftir það getur maður farið að setjast í skrifstofustólinn aftur og segja fyndna brandara og þykjast vinna þess á milli. En hvort það verði í London, hjá fjárfestingarfyrirtæki, hjá Baugi, eða hvað það verður er ómögulegt að segja um og þessvegna er þetta soldið spes.

En hvað sem því líður verður mjög skrýtið líka að koma heim þar sem herbergið mitt bíður alltaf eftir mér, og vera þar í 3 mánuði rúma! Það hefur ekki gerst í 2 ár og finnst mér fyndið að hugsa til þess að í næstu viku verði ég eitthvað slakur þar, kannski að borða popp með Ella Joð eða kúra með Örvari, horfa á fótbolta með Brynjari eða á matreiðslunámskeiði hjá Ívari?

Ég geri hinsvegar miklar væntingar til sumarsins og ætlast til þess að við félagarnir verðum framtakssamir í því að gera eitthvað annað en að fara á Pakkhúsið, er að pæla í að setja hámarksheimsóknarfjölda þangað í sumar, kannski einsog 5 skipti á mann, og fara þá frekar í útilegur, í Reykjavík, Hjallann, á snjóbretti og líka bara halda góð partý. Ég skal kick-starta þessu með góðu afmælispartýi í kringum 23. júní og svo sláum við ekki slöku við. HM í fótbolta verður regluleg dægrastytting ásamt knattspyrnuiðkun, og svo verða líka stangir beygðar reglulega!!

En bæ London, sjáumst í september!

3 comments:

Anonymous said...

Hlakka til að fá þig heim..ég keyri ;)

Anonymous said...

SNILLD

Anonymous said...

http://www.my.opera.com/elinmjoll og tha ertu i godum malum :)