Monday, July 31, 2006

Milf

Þá er maður búinn að fá staðfestingu frá London South Bank University um að maður sé velkominn um að ganga í söfnuðinn þeirra í september næstkomandi. Ég hugsa að ég slái til og verði þar eitthvað framá næsta sumar, svei mér þá. Ég sakna tvennunnar skelfilega mikið, þ.e.a.s. O'Neills á Wardour Street og smella sér svo beint á 13 Gerard Street, en það er einmitt á Gerard Street. Nett! Svo eru íbúðarmál að skýrast en ég er búinn að fá það staðfest að ég fái inná campusinn í skólanum, sem mér líst vel á. Hefur alltaf langað til að prófa að vera á campus, taka soldið þátt í félagslífinu o.s.frv. Svo skemmir það ekki fyrir að campusinn sem ég sótti um er á mjög flottum stað, ekki langt frá "Tate museum of modern arts" og "The Millenium Bridge".

Er sirka einn og hálfur mánuður ennþá í flutning svo að maður er rólegur ennþá. Á eftir að vinna sunnlensku deildina en ég held að mesta spennan sé núna hvor skori fleiri mörk, ég eða Einar Káti. Við höfum spilað skemmtilega saman frammi, næstum einsog í teiknimynd, og erum báðir búnir að skora sitthvor 11 mörkin í sumar. Þess má geta að 11 er prímtala og ég ætla að reyna að enda sumarið á prímtölu. Svo er Selfoss, heimabærinn, að snúast uppí eitthvað syndabæli (e. Sin City) en fréttir þaðan síðustu daga gefa til kynna að hér sé lítið annað gert en spólað í hringi, flúið lögguna og brotin höfuðin á aðkomumönnum sem lenda í því óláni að selja eiturlyf til grunnskólabarna. Ég segi að þetta hafi alltaf verið svona, það vildi bara enginn tala opinskátt um þetta fyrr en Eyþór Arnalds kom í bæinn, setti Árborg "in the spotlight" og opinberaði síðan sinn "kók og staur" vanda. Eftir það var allt annað smáræði. Eyþór lét okkur horfast í augu við vandann, Árborg er batnandi bær, og honum er bezt að lifa. Og meðan við erum á málefninu þá skulum við tala um hvað Eyþór er fínn náungi, og þá er ég að sjálfsögðu að tala um í tauinu.

Ég ætla að enda þetta á frábærum húmor, Jesúhúmor.
(Birt með góðfúslegu leyfi þjóðkirkjunnar og höfundi biblíunnar, Michael Moore)

1 comment:

Anonymous said...

svei mér þá....ég er ekki frá því að konan neðst hægra megin sem segir OWNED sé bara Alma Nielsen skólafélagi og frilla djöfulsins