Monday, September 25, 2006

ein-tómt-fjör...

Helgin fór í það að horfa á fótbolta, kíkja aðeins niður á Old Street í smá glens og síðan var lesið um "credit contracts" og "option contracts". Hreint alveg ágætis helgi, fékk sex tvisvar og kærastinn minn er yndisleg manneskja. Grín, smá blogghermir í gangi þarna.

Kennsla hófst í dag, byrjaði samt frekar rólega, var ekki nema 2 og hálfs tíma fyrirlestur í Technical Analysis og var David Clemson (nánari upplýsingar í fyrra bloggi) að koma með nokkra góða brandara, ekki það að það hafi verið hlegið að þeim öllum. En það er líka ekki alltaf málið, lélegir brandarar geta verið mjög góðir líka, sérstaklega eftir á. Svona in the "long-run".
"Long-run brandarar".

Ég, Ólafur Johnson og Helgi (mágur Hreiðars) höfum ákveðið að fara á Anfield fyrir áramót, dagsetningin verður ákveðin seinna í vikunni en allavega, það er orðið ljóst að "You'll never walk alone" verður sungið reglulega þangað til. Og Steve Gerrard lagið líka. Og "We've won it five times, we've won it five times, in ISTANBUUUL... o.s.v."

Keypti mér 3 bækur í dag (enn bætist í safnið), Technical analysis of the financial markets, Hedge Funds - The courtesans of capital markets og síðan Liar's Poker. Ég skal setja inn review um þær um leið og ég er búinn að lesa þær, sem verður örugglega spennandi (fyrir mig).

Ætla að fara að drífa mig í gimið (gimið), ég þarf að rétta við stangirnar sem ég beygði síðasta föstudag.

Ætla að enda þetta á commenti.

"djös"

-Ari Geit (1984-present)

2 comments:

Anonymous said...

"eintómlegt fjör"
Snilld snilld Milf,,
Anfield djöfuls snilld maður.
Vonandi fer það betur en á Higbury í vetur...

"taktu þessu eins og kona"

-Hilmir (1984-2007)

Anonymous said...

brilliant darling..gott þegar allt gengur í kleinum eins og amma myndi segja.

Alltaf nó að gera hjá þér í að lyfta blýöntum og pressa jakkafötin sem er auðvitað excellent.

Verum í skypebandi þar sem elvis has left the island..

kiss kiss og knús og take care now..