"Alveg hreint ágætis helgi..."
Þá er vikan liðin, leið helvíti hratt, en það virðist vera einkenni þessarar borgar. Tíminn sem ég var hérna frá janúar til júní hvarf allavega. Í þessari viku byrjum við í seminars eftir hvern fyrirlestur, sem eru eiginlega bara vinnutímar þar sem maður vinnur verkefni eða þykist vera að því meðan maður gerir eitthvað annað. Búinn að kaupa allar bækur loksins, orðið ágætissafn sem maður er kominn með og nóg framundan að lesa.
Gærdagurinn var svakalegur. Byrjaði á því að ég horfði á Bolton vinna Liverpool með æðislegri spilamennsku, þeir eiga heiður skilinn fyrir að vera leiðinlegasta lið deildarinnar, plús þeir eru með leiðinlegasta stjórann. "Big" Sam Allardyce er auðvitað afkvæmi bolabíts og glæpamanns, og ég er ekki frá því að línuvörðurinn hafi verið á helgartaxta frá Samma. Aukaspyrnan sem hann dæmdi á Reina var svo langt frá því að vera rétt, í endursýningunni sást greinilega að línuvörðurinn var fáránlega staðsettur til að dæma þetta, og er mér gjörsamlega óskiljanlegt hvað maðurinn var að hugsa. Sennilega ekki neitt. Svo fékk orangútinn Ivan Campo boltann í höfuðið í seinna marktækifærinu þeirra í leiknum og skallaði í slána og út, réttilegt mark en mjög ljótt engu að síður og undirstrikaði enn frekar hvað þetta var æðislegur leikur. Liverpoolmenn voru mjög lélegir, því er ekki að neita, en ég kýs að fókusera frekar á alla aðra hluti því að ég er með litaðar skoðanir.
Eftir leikinn fórum ég, Hödds, Óli og Helgi á Carnaby street, sötruðum gefins bjór og spiluðum "Bullshit" (How to lose a guy in 10 days) sem var snilld. Hef aldrei logið jafn mikið á einum degi, enda strangkaþólskur. Svo var haldið heim til Hödds og Óla og spilaður póker þar sem enginn annar en ég tók pottinn (mont). Nokkur Sterlings þar. Eftir að hafa eitrað fyrir okkur þar fórum við niðrá Tottenham Court Road, hittum íslendinga (m.a. Ingu sem var mjög hress í verslunarferð með vinkonu sinni) og drógum þá með okkur í partý og svo á djammið.
Vaknaði síðan klukkan 9 í morgun eftir 3 tíma svefn og græjaði mig fyrir fótbolta í Regent Park. Byrjuðum uppúr 11, 8 helmassaðir íslendingar og spiluðum m.a. við Breta sem við að sjálfsögðu unnum. Um 1 leytið þegar við hættum var ég búinn að ofbjóða líkama mínum svo maður fór þá í slökun sem sér ekki fyrir endann á í augnablikinu. Hef tekið þá ákvörðun að drekka ekki næst fyrr en Bryndís kemur í heimsókn, sem verður eftir 2 vikur. Heil helgi í frí!!
Annars er nóg í gangi, þétt prógramm framundan. Plús venjulega skóli, fótbolti og lyftingar þá er Bryndís á leiðinni eftir ca. 2 vikur, ég var að panta mér far til Ítalíu að heimsækja Kolbrúnu og Kiko þann 18-22 október og svo er búið að plana ferð á Anfield í byrjum Nóvember að sjá Liverpool-Reading, janfvel inní myndinni að gista eina nótt í Bítlaborginni. Verður einmitt ferð frá Liverpoolklúbbnum á þennan leik svo ég býst við stórum hlutum.
En gott í bili, vikulegt update staðreynd og "Hedge Funds: Courtesans of Capitalism" bíður eftir mér uppí hillu.
7 comments:
Ég held ég viti upp á hár hvað allar bækur sem þú ert með þarna heita. Gott mál.
Pældu í því hvað þú gætir verið búinn að lesa margar bækur ef það væri ekki til Championship Manager?
Þú værir sennilega búinn að umbylta trúarhugmyndum kristinna manna ef svo væri, ásamt því að afsanna pýþagórasregluna og værir kominn með nýjan aukastaf á "Pí".
Bókaormur..spurning um að hætta að drekka og spara fyrir fleiri bókum..hugmynd?
Upps gleymdi að gera kv. sólrún..:)
og segðu svo bryndísi að stoppa við hjá mér á strikinu..one way to go!!
..og væri jafnvel búinn að afsanna Ohms-lögmálið í raffræði.
Hehe þið eruð fyndnir! En Gummi þú verður að vera edrú í heila viku í viðbót.. ekki viss um að þú getir það! ;)
En já Sólrún, ég væri svoo til í að koma við hjá þér í gott tjill á strikinu en verð víst á láta Gumma og London duga í bili...
Takk fyrir seinast! Þetta var algjör snilld! Langar ekkert smá í tónlistina sem var spiluð á þessum klúbb... ekkert smá flott remix
Post a Comment