Tuesday, October 03, 2006

Being for the benefit of Mr. Kite

Ég vil byrja á því að tileinka þetta blogg honum Brynjari vini mínum en hann er ansi fínn náungi, ef hann væri breskur væri hann sennilega kallaður "spontaneous", "witty" eða jafnvel "ace", og myndi sennilega heita "Blimey" í símanum mínum. En að efninu...

Árið er 1967, dagurinn er 31. janúar og tveir Bretar labba inní antikbúð ekki fjarri Kent, og sjá þar fallega innrammað sirkus plaggat, ekki ósvipað því hér fyrir neðan, í rauninni nákvæmlega sama plaggat!

Annar Bretinn ákveður að festa kaup á þessu fallega plaggati, þar sem hann hreifst af skemmtilegu orðalagi og framandi nöfnum sem komu þar fyrir. Stuttu seinna semur hann lag þar sem ýmis nöfn á plaggatinu spila aðalhlutverk, og er lagið tekið upp þann 17. febrúar 1967 og kom út á plötu 1. júní sama ár.

Núna er Brynjar fyrir löngu kominn á sporið ásamt fleiri söguþyrstum tónlistarunnendum, en þessi saga væri alls ekki merkileg nema fyrir þær sakir að platan sem "Being for the benefit of Mr. Kite" hljómar á heitir því skemmtilega nafni "Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band" og maðurinn sem keypti plaggatið og samdi lagið var enginn annar en John Lennon.

For the benefit of Mr. Kite
there will be a show tonight on trampoline
The Hendersons will all be there
late of Pablo Fanques'fair, what a scene
Over men and horses hoops and garters
and lastly through a hogshead of real fire
In this way Mr. K will challenge the world

The celebrated Mr. K
performs his feats on Saturday at Bishopsgate
The Hendersons will dance and sing
as Mr. Kite flies through the ring, don't be late
Messers K. and H. assure the public
their production will be second to none
And of course Henry the Horse dances the waltz

The band begins at ten to six
when Mr. K performs his tricks without a sound
And Mr. H will demonstrate
ten somersets he'll undertake on solid ground
Having been some days in preparation
a splendid time is guaranteed for all
And tonight Mr. Kite is topping the bill

*
Ef þið hlustið vandlega þá er óvart slegið í ride cymbalinn á 54 sekúndu ásamt því að hi-hat slag vantar á 1:24 mín.

2 comments:

Anonymous said...

...Sirkus hljóðið í laginu er leikið á Gufuorgel eins og notað er í hringekjum í skemmtigörðum. Algjör snilld!

Anonymous said...

Pant fá sniðuga sögu um Justin Timberlake í næsta bloggi hahaha!!