Monday, October 23, 2006

Ferðasaga 1

Ég skrifaði smá á leiðinni til Ítalíu, best að setja það hingað inn, síðan kem ég með smá sögu og myndir í kvöld líklegast þegar ég er búinn að ná andanum.... bið að heilsa.

Þá er ferðin að mestu leyti búin, ein góð klukkutíma bátsferð eftir í mildri Miðjarðarhafsgolunni. Flugið með Sirkus Geira smart og félögum gekk furðuvel, náði að nýta olnbogarýmið til hins ýtrasta og útbjó fínt excelmódel fyrir vogunarsjóðinn sem við munum stjórna á næstunni í skólanum. Er sérstaklega stoltur af því að módelið nemur hvort maður er að kaupa bréf til að halda eða hvort að maður er að selja ”stutt” (e. short-selling). BTW vogunarsjóðurinn okkar fékk nafnið ”Mímir Equity Management” (MGM) en það er sérstaklega skemmtilegt fyrir þær sakir að Mímir var tröllið í gömlu goðafræðunum sem sá um að gæta Mímisbrunns. Hann vissi allt um fortíð og framtíð og seldi seinna Óðni sopa af brunninum, sem gerði hann alvitran, fyrir eitt stykki auga. Kjarakaup þar á ferð, svipað og að versla í Bónus. Seinna meir kom Óðinn reyndar að Mími hálshöggnum við brunninn, en hann náði að halda í honum lífinu og tók hausinn með sér heim þar sem hann spilaði skák við hann. Hvernig kemur það samt út, ef báðir voru alvitrir, þá þýddi ekkert fyrir Óðinn að koma með Fjalarköttinn því að Mímir vissi það fyrir, og Óðinn vissi einnig að Mímir vissi o.s.frv. Ég segi að það hafi verið pattstaða áður en fyrsta manni hafi verið leikið út. Peð á Bjarna 12, Bjarna 12.

En aftur að Ítalíuförinni. Lenti í smá djókatriði á Stansted flugvelli. Einhver pattaraleg bresk gyðja sem vann í innrituninni tók við vegabréfinu mínu einsog tíðkast, en fannst það e-ð fyndið og blátt á litinn. Hafði aldrei áður séð íslenskt vegabréf. Hún fór að sýna vinnufélögunum á næstu básum vegabréfið mitt, og fæstir kipptu sér nokkuð við. Svo hélt hún áfram að vinna vinnuna sína og opnaði það til að athuga með nafnið mitt og aðrar upplýsingar til að geta tékkað mig inn. Jæja, hún flettir á síðuna þar sem myndin af mér er ásamt nafni, kennitölu o.s.frv. og staldar þar við, setur upp skrýtinn svip og segir: ”Fuck off!!”

Róleg samt, ég hélt að fólk væri almennt meðvitað um það að það væru til nokkur hundruð þjóðerni og þaðan mun fleiri framandi nöfn.

Vissuð þið....?

... að skuldabréfasalarnir hjá Salomon Brothers á Wall Street voru svo góðir með sig (þar sem þeir voru aðaltekjulind tekjuhæsta bankans á Wall Street á 9. áratugnum) að þeir létu lengja símasnúrurnar í símunum sínum til að þeir næðu að drífa lengra þegar þeir hentu þeim að lærlingunum sem voru í starfsþjálfun!

1 comment:

Anonymous said...

Hó hó..better to be safe than sorry..en varst ekki jafn heppin og ég að mitt vegabréf túlkaðist í first class kaviar og kampavín þegar ég var að ferðast ein til italy...mmm sweet!!
Og þau treystu mér fyrir alvöru hnífapörum...vó

En bíð spennt eftir second half en sá fyrri var bara góður...góður!!