Mánudagsbloggið
Eftirfarandi frétt var á mbl.is í dag:
"Gianluigi Buffon markvörður Juventus segir vel koma til greina að hann yfirgefi Juventus í sumar en þessi 28 ára gamli dýrasti markvörður heims er samningsbundinn Tórínóliðinu til loka þessa tímabilis. Orðrómur hefur verið í gangi að Chelsea líti hýrum augum til Buffons enda vita forráðamenn liðsins ekki hvernig Tékkanum Petr Cech reiðir af en Cech er að jafna sig af höfuðkúpubroti.
Fleiri ensk úrvalsdeildarlið hafa spurst fyrir um Buffon sem er 32 ára gamall og markvörður heimsmeistara Ítala."
Glæsileg fréttamennska svo ekki sé meira sagt. Hið sanna er að hann er 28 ára gamall og fínn strákur. Smáatriði kannski, en heimurinn er nú samt samsettur úr smáatriðum og því finnst mér í lagi að hafa þau rétt.
Ég hef verið ansi rólegur eftir að ég kom frá Ítalíu, það eina eftirminnilega sem ég gerði í vikunni var að ég spilaði póker heima hjá Óla Johns við hann og Helga og Elvu, sem eru einmitt kærustupar. Mjög nett moment átti sér stað milli 2-3 um nóttina, þegar við 4 vorum að shuffla pókerpeningunum og blöffa. Þannig er mál með vexti að við 3, ég, Óli og Helgi, vorum búnir að tala um að fara á Anfield þann 4. nóvember og sjá Liverpool spila við Reading og taka road trip og hostel á þetta. Geðveik ferð semsagt. En Helgi sagði okkur seinna frá því að hann kæmist ekki með þar sem þetta væri soldið þungt fyrir veskið. En þarna um nóttina, eftir nokkra öllara og gott ef Kafteinn Morgan frændi var ekki mættur á borðið og byrjaður að eitra fyrir Helga og Elvu, þá fór Helgi að tala um að honum langaði svo á leikinn með okkur. Þá gerðist ótrúlegur hlutur, skötuhjúin fóru í samningaviðræður um að ef hann færi á leikinn þá mætti hún versla fyrir X mikinn pening í staðinn. Að lokum komust þau að samkomulagi, tókust í hendur að viðurstöddum 2 vottum og innsigluðu samninginn. Það var ólýsanleg gleði sem fór um stofuna á Glouchester Place og voru allir helstu Liverpool söngvarnir teknir ásamt lofsöng um Steven Gerrard, minnst 3 sinnum. Við höfðum endurheimt Helga.En aftur að öðru, hér er það helsta úr Slúðrinu:
- Óli Johns sást á 13 Gerrard Street að slefa uppí Natalie Portman (The Sun)
- Ellsi Joð, Billsi og Kokkteilgæsin eru á leiðinni til London í desember (Hello)
- Brynjar keypti forláta Rolex úr á uppboði á Typpakvöldi Knattspyrnudeildar Selfoss um nýliðna helgi (Hann hringdi í mig fullur og ég heyrði þetta í beinni)
- Ari Geit átti mök í ónefndum sumarbústað við hina velkunnu Lucy (Lifandi Vísindi)
- Sprelli var staddur á Grand Rokk þar sem hann bauð fólki uppá Irish Coffee og sleik (Evening Standard)
- Örvar er talinn vera á lífi, fregnir eru af því að hann hafi sést á eftirlitsmyndavélum í Sjoppunni í Þorlákshöfn (óstaðfest)
- Einar Kári var edrú um helgina, en þetta er í fyrsta skipti sem það gerist eftir siðaskiptin (Þjóðkirkjan)
- DNA sýni hafa leitt í ljós að Helgi Hermanns. og Willem Defoe eru einn og sami maðurinn (Metro)
Og já ég blogga eiginlega alltaf bara á mánudögum, skrýtið? Eða skrítið?
2 comments:
ohhhhhhh nat er svo sæt. við erum einmitt á first name basis núna eftir þetta ... var ekki viss hvort þetta yrði vandræðalegt þegar ég hringid í hana daginn eftir ... en hún mundi alveg eftir þessu og sagðist hafa skemmt sér vel :) hvort eitthvað meira verði úr þessu verður bara að koma í ljós ... en við skiptumst allavega á msn og email ... jei!
Þetta er líklega í fyrsta skipti sem nafn mitt er skráð í kirkjunnar bækur... (vonandi allavega)
Post a Comment