Week 35 (Uge femogtredive)
Þá er maður búinn að missa það aftur í smá djamm eftir eina rólega helgi. Get ekki sagt að maður sé sérstaklega stoltur svona eftir helgina, en það var samt fjandi gaman meðan á því stóð. Fór loksins á O'Neills og 13 Gerrard Street eftir að hafa ekki farið þangað síðan í Maí. Rallið á Gerrard Street var ótrúlegt í alla staði, Bryndís var í heimsókn auðvitað og hún fann einhvern Frakka til að dansa við sem var einmitt það sem ég og Óli Johnson þurftum til að algjörlega sleppa af okkur beislinu. Verst að ég tók ekki myndir, en það helsta sem gerðist var:
1. Við kenndum 200 kg kolrangstöðum og tannlausum Breta að flippa bjórmottum, mjög skrautlegt! Hef aldrei séð mann drekka jafn mikið, hann tók pint af bjór í 4 sopum!
2. Við jögguðum allt inná staðnum, og allir tóku vel í það, enda ekki annað hægt þegar það lítur framaní Óla og sér saklausa brosið á honum.
3. Ég dansaði við dverg og lét hann að lokum fá nafnspjald frá einstakling sem verður ekki nafngreindur, en hann á allavega von á skemmtilegu símtali í vikunni.
4. Við tókum signature reynslu move frá Tryggva (Kolding) til að reyna við tvær asískar vændiskonur. Svipurinn á þeim var óborganlegur!!!
Að auki hittum við fertugan indverja sem fór að apa eftir mér að troða sér inná myndir hjá einum stelpuhóp, og það var vægast sagt sjúklegt hvað hann brosti sínu breiðasta um leið og hann stökk á þær þegar þær tóku myndir (svona einsog stelpur gera, halda utanum hvor aðra og taka mynd af sjálfum sér og 2-3 vinkonum sínum). Má eiginlega segja að hann hafi misst coolið sem hann hafði ekki fyrir.
Er að fara til Ítalíu á miðvikudaginn eftir skóla. Verð framá sunnudag í góðu yfirlæti, ekki spurning, en framað því þá verður maður að vera double up á skólanum til að geta leyft sér að slaka á í sólinni.
Ég bý í háskólaíbúðum einskonar, sem skólinn rekur og hef ég þar mitt herbergi og baðherbergi en deili eldhúsi með 6 öðrum einstaklingum. Ágætis fyrirkomulag svosem og hef ég núna kynnst aðeins fólkinu sem ég bý með. Af þeim eru 3 stelpur og 3 strákar, og oftar en ekki lendir maður í small-talk þegar maður er að borða. Fyrr í kvöld vorum við í eldhúsinu að spjalla saman um eitt og annað og þá að sjálfsögðu á engilsaxnesku og hver og einn með sinn eðalborna hreim, hvort sem hann var indverskur, breskur eða norskur. Þegar ég geri mig reiðubúinn að fara inní herbergið mitt spyr einn sambýlingur minn mig: "Ertu íslenskur?"
Fjandann er gaurinn að reyna að segja hugsaði ég í einsog 2 sekúndur, alveg þangað til að ég áttaði mig á því að þetta var svo sannarlega ekki hreimurinn sem ég þurfti að skilja í enskunni hans, heldur þurfi ég að fara í settings og stilla sjálfan mig yfir á íslensku. Gaurinn er semsagt búinn að vera íslenskur í allan þennan tíma, og jafnvel lengur!
Er farinn að lesa í Strategic Management sem er hrikalega leiðinlegt og þaðan fer ég í Liar's Poker sem er fáránlega góð. Mæli með henni eindregið.
5 comments:
Það er aldeilis..aldrei break hjá þér í djamminu!! Spurning um að gefa þér gjafakort á pakkarann í jólagjöf? En þessi dvergur, var þetta ekki bara Bryndís litla og þú á 2 glasi ? SMilf..
Já já þessi týpa.. Hápunktur helgarinnar var sem sagt þegar þú varst laus við mig.. það þýðir ekkert að vera bitur þó þú kunnir ekki að dansa! :-)
Ég er atvinnudjammari, ég dansa til að gleyma. Ég gleymi til að dansa. It's a two way street s.s.
Og það þarf ekki allt að meika sense alltaf, bara hljóma vel.
Hvað er eiginlega að þessari síðu.
Held að Billi, humarin (humarin), hafi laumað amfetamínbasa í sprite zero-ið hennar.
Heimta ferðasögu..sem er eiginlega svona , bjór, sandur, sól, bjór og kolbrún að öskra á hundana..nema í þinni útfærslu og myndir..STRAX
Já ég er frek..
Post a Comment