Þetta er tilkynning frá 11-11
Það er afmælisbarn í hópnum, nánar tiltekið hún Sólrún Tinna systir mín. Hún er orðin háöldruð, komin veeeeel á þrítugsaldurinn, fædd á því allt-í-lagi ári 1982 og því 24 ára samkvæmt tímavélsreiknivélinni hans Ívars Atla.
Ég held það sé kominn tími á að skrifa nokkur vel valin orð um hana Sólrúnu, og þó þau séu vel valin þýðir það ekki að þau séu jákvæð. Alls ekki hæ!
Hún hefur allt sitt líf verið í minnihluta, því þegar við vorum 3 lítil systkinin þá vorum ég og Kolbrún alltaf saman í liði á móti henni. Ósanngjarnt finnst sennilega mörgum, en lífið er líka ömurlegt, hvað á maður að gera í því? Hún var reyndar alltaf helvíti hörð stelpan, ég held ég hafi verið um 10 ára aldurinn þegar ég réði loksins við hana, en þá réði ég líka við hana og Kolbrúnu báðar í einu, og átti það til að vöðla þeim saman og henda þeim í hrúgu á gólfið í Lágenginu, einsog karlmönnum í minni ætt sæmir. Ég rústaði þeim. En ef að þeim tveim lenti saman þá forðaði ég mér oftast, því allir karlmenn vita það líka að þegar cat-fight er í uppsiglingu þá er tími fyrir hundana að ná sér í bein. Og já þetta hljómar mun betur á ensku.
Sólrún byrjaði að reykja þegar rétt eftir fermingu ef ég man rétt, þvert á vilja allra í fjölskyldunni enda var alltaf brýnt fyrir okkur hversu skaðlegar reykingar væru, handbendi djöfulsins o.s.frv. Samt reykti mamma lengi vel, ásamt pabba. Tvöfalt siðgæði dömur og herrar. En þessar reykingar Sólrúnar voru samt bara til þess fallnar að gera uppreisn, e-ð sem ég hef aldrei þorað að gera gegn mömmu minni. Sólrún fær því prik fyrir það.
Annað sem Sólrún fær prik fyrir er hvað hún hefur oft nennt að baka fyrir mig, það verður aldrei þreytt. Kökur, snúðar, pizzur, alltaf er hún mætt. Án þess að vera að grínast þá er hún með sama persónuleika og Monica í Friends, enda væri það ekkert fyndið heldur. Þá er ég bæði að tala um að hún er heimilisleg á sjúklegu stigi (og Óskar er það reyndar líka, tveir plúsar gera... plús?) og það sem meira er, að spila við hana er einsog að vera gyðingur í Auswitch, eða ætti ég frekar að segja að það sé ekki ósvipað því og að vera öryrki.... maður getur ekki unnið. Ef henni tekst ekki að vinna mann samkvæmt reglunum, þá kemur það sér vel að hún semur alltaf reglurnar. Svo er hún óhemju-ill-intense þegar kemur að því að giska á e-ð. T.d. þegar verið er að teikna í Pictionary eða Partýspilinu þá er hún búin að giska á allt frá A-J í íslensku orðabókinni áður en það er búið að teikna nokkurn skapaðann hlut. Ég þoli það ekki!
Eitt er það sem ég hef aldrei skilið, og það er það hvernig Sólrún heldur í sér lífinu. Ég hef séð hana borða e-ð hollt 3 svar á ævinni, og það er samt í öll skiptin sama ljósmyndin sem ég sá. Hún fær sér Cocoa Puffs í morgunmat, Coco Pops í hádeginu, Haribo í kaffitímanum, samloku með bræddum osti í kvöldmat og dietlightextraCola með, og svo um kvöldið þá gerir hún vel við sig og fær sér kæmpe Malteserspoka og skál af poppi. Þetta afsannar ýmsar kenningar í líf og efnafræði, hvað segir Dr. Guðmundur Eggertsson um það? (prófið að Googla nafnið mitt, það er snilld, Líf af lífi maður).
Ég ætla að enda þetta á mynd af Sólrúnu og Óskari. Þau myndast ekkert svakalega vel, en þessi mynd var þó mjög góð fannst mér, svona fermingar-/visakortasvipur á þeim. Þetta var tekið í einu af partýunum sem við tókum saman í sumar. Það er alltaf jafn mikil snilld að djamma með Sólrúnu og Óskari (því að þau taka alltaf til með mér, eða ég með þeim, eða þau bara?) og hlakka ég til að hitta ykkur um jólin. Hafið það gott í Köben og vonandi áttirðu góðan dag.London kveðja,
Gummi bró.
7 comments:
Getur verið að öryrkjaskotið séð á mig.....?Bara svo við höfum það á hreinu þá geta þeir sem eru á Öró unnið, í jólahappadrætti Öryrkjasambandsins þar sem vinningarnir eru 2 fyrir 1 ferðavinningur til Kosovo og take 3 buy 2 pocket magnilpakkar.Takk og bæ, KDE stóra sys.
Thats the story of my life..All true!! Eitthvað verður hann að gera því ekkert toppar myndatökuna 7 um morguninn á afmælinu hans í sumar sem er bara good times!
Takk fyrir að muna eftir mér..en jú með 3 systur er ekki annað hægt þar sem gummi, án þess að hann viti það, er núna kominn í minnihluta.
Hlakka til að taka scrabble um jólin og hvað annað en vinna..spurning um að leggja klink undir í þetta skiptið?!? , éta tonn af homemade ís með extra toblerone og skamma þig fyrir að ryksuga ekki forstofuna nógu vel!!
Goot times og þessi mynd fer sko beint á topp 10 listann..perfect match!! Jólakort..?
Kossar og knús
Love u :*
Hehe krúttlegur pistill frá "litla" bróa:) bara gaman að lesa þetta og þetta með spilin er bara snilld hehehe erfitt að vinna Tinna í spilum:) það er líka ekkert spaug þegar nokkrir sporðdrekar koma saman:) og Monica já hehe
en til hamingju með systur þína:)
Það kemur sko bara ekki til greina að e-r vinni Sporðdreka í spilum!! Sérstaklega ekki ef 2 sporðdrekar eru saman í liði ;)
En þessi pistill er annars mjög skemmtileg lesning ;)
Anna Kristín...sporðdreki með meiru ;)
Hahaha þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið lengi :) Sólrún ótrúlegi karakterinn!! spes... Talandi um taka til áróðurinn hjá þeim skötuhjúum í Köben,kíkti í heimsókn til þeirra um daginn og þau byrja alltaf daginn á að ryksuga og svo enda þau daginn á að tala um að ryksuga í fyrramálið!!! þess má einnig geta að Óskar keypti ryksugu í stíl við mótorhjólið...Klikkhausar??veit ekki...
Helena
Hahahahaha.... þetta er ekki eðlilegt með þau.
Ég ætla að vera extra-sóði þegar ég kíki á þau, missa kebab í sófann og hella Matilde í rúmfötin, hrista Jolly cola og opna hana svo á miðju eldhúsgólfinu, og auðvitað missa smörrebrod - við vitum á hvorri hliðinni það lendir!
uhhh...það er einhver sem á ekki eftir að lifa þessa heimsókn af!
Helena
Post a Comment