Monday, November 13, 2006

Fjandann..

... er Kieran Richardson að gera í enska landsliðshópnum. Maðurinn er svo mikið langt frá því að vera góður fótboltamaður. Var það ekki Roy Keane sem gagnrýndi hann harðlega á síðustu leiktíð þegar hann sagði að Richardson væri ekkert búinn að afreka, væri bara ofdekraður og ofmetinn og myndi ekki gera annað á æfingum en að tala um Bentleyinn sinn. Með engri virðingu fyrir Manchestermönnum þá er hann líka búinn að spila einsog spastísk smástelpa á tímabilinu. Svo hvern fjandann er McLaren að pæla, fékk hann sama sjúkdóm og Eriksson?

Svo vil ég auglýsa eftir Steven Gerrard, hann sást síðast ganga inná Emirates Stadium í London í gær.

Ég sá frétt um daginn að einhverjir pólitískir ofstækismenn með Þorgerði Katrínu í fararbroddi vildu íslenska heiti á öllu erlendu sjónvarpsefni. Það er kjánalegt! Á sama tíma og alþjóðavæðing er hvað mikilvægust og flestöll embætti ríkisstjórnarinnar vinna hörðum höndum að því að flétta Ísland við erlenda markaði er svona skrípaleikur að toga í akkurat hina áttina. Að sjálfsögðu á íslenska tungan sína merkilega menningu sem vert er að halda í, en við skulum samt ekki sleppa okkur alveg í því að boða fagnaðarerindið. Ef Íslendingar myndu bara tala íslensku þá værum við allavega 30 árum aftar í þróun samfélagsins, á öllum mögulegum stigum.

Það er svo mikið kjánalegt sem ég sé að ég gæti skrifað bók um það. T.d. sá ég myndband um tvöföldun Suðurlandsvegar um daginn. Mjög gott video, Eyþór Arnalds fór á kostum í því að þylja upp hinar og þessar staðreyndir um nauðsyn þess að tvöfalda veginn. Hann sagði samt aldrei neitt um það að ef hann hefði verið tvöfaldaður fyrir þónokkru síðan þá hefðu verið mun minni líkur á því að hann hefði keyrt fullur útaf. Þá hefði hann bara sveigt yfir á næstu akgrein og síðan getað haldið áfram á henni til Reykjavíkur og heim til sín. Betra fyrir alla (sjálfstæðisflokkinn og konuna hans)!

Takk fyrir og sjáumst.

1 comment:

Anonymous said...

Hey hó..ekkert uppi?

Sjáumst eftir 27 daga..

:*