Thursday, November 23, 2006

Fréttir frá London

Jæja stúlkur, ýmislegt búið að gera síðan síðast. Ég hef verið latur við að skrifa hérna því ég hef einfaldlega verið að skrifa annarsstaðar. Búinn að vera að skrifa ýmislegt fróðlegt inná CJ, allt frá West Ham yfir í fjöldamorðingja yfir í Ella J yfir í Icex djók.

En eftir 2 vikur koma 3 drengir í heimsókn, Billi, Elli og Ívar Atla. Ég er með solid dagskrá handa þeim, bara mæta með góða skapið og smarties, ég redda hinu. Svo eftir 3 vikur þá fer ég heim í jólafrí sem á eftir að einkennast af því að ég fer í próf í byrjun janúar. Spes. Sælar.

Í augnablikinu er ég að vinna í fjármálaverkefni sem ég ætla að reyna að klára áður en strákarnir koma, ég ímynda mér að ég eigi ekki eftir að vera mikið í bókunum meðan þeir eru hérna.

Mamma og pabbi voru hérna síðustu helgi og gerðum við ýmislegt saman. Fórum m.a. 2svar mjög fínt útað borða, annarsvegar á franskan stað, Le Boudin Blanc í Mayfair og hinsvegar á Asia De Cuba í Covent Garden, báðir mjög góðir staðir sem ég mæli hiklaust með. Einnig tók ég Pabba í smá göngu um London, ásamt því að heimsækja þau á þeirra annað heimili meðan þau voru hérna, Oxford Street. Go mamma.

Óli Johnson fær fálkaorðuna fyrir góð störf í þágu mín, þar sem ég kíkti á hann í gær og varð mér úti um nýja tónlist, þar á meðal nýja Damien Rice diskinn sem ég hef hlustað á stanslaust síðan þá. Einnig varð ég mér úti um nýja Outkast diskinn, Fræ (sem er nett á köflum) og Damien Rice B-sides og tónleika. Svo var toppurinn á þessu öllu bókin "Choke" sem hann lánaði mér, og ég er nú þegar búinn með 1/3 af henni, svo góð er hún. Höfundurinn er sá sami og skrifaði "Fight Club" (þar sem Edward Norton réð ekki við sig), en þessi bók fjallar um kynlífsfíkil sem á alzheimersjúka móður. Ég vil helst ekki segja meira, en mæli hiklaust með þessari lesningu.

Elli Joð fær einnig fálkaorðuna, en hann sendi mér fullt góðu efni til að horfa á. Prison Break 2 sería alveg jafn góð og sú fyrri.

Meðmæli dagsins er að fólk upgreidi í Internet Explorer 7, ef það hefur ekki enn gert svo. Firefox var stórt stökk frá IE í den tid, en IE er núna búið að taka álíká stórt stökk framúr Firefox. Það er einhvernveginn miklu skemmtilegra að browsa með IE 7, nýjir flýtihnappar og læti.

Leikur við Norðmenn á sunnudaginn, ég hef heyrt því fleygt að þeir sporti markmanni sem spilaði í Premier League fyrir nokkrum árum. Ég ætla mér að skora hjá honum og monta mig síðan.

En þá er ég búinn að updeita sjálfan mig, verði ykkur að góðu. Áfram Liverpool.

8 comments:

Anonymous said...

Klárlega mikið ósammála þér með IE og Firefox.

Firefox er svo miklu betri en IE að það er ekki fyndið. Það stafar kannski af því að Bill Gates er lespía.

Gummi said...

Hey Elli Joð.. meinarðu lesbía?

IE 7 er skv. mínum fyrstu prófunum að taka FF í ressgetið. Ef þú vilt vera trúr litla manninum þá skil ég það vel, ég aftur á móti vel bara það sem hentar mínum þörfum best. Ég skal lofa þér því að bæði fyrirtækin eru að gera góðan pening.

Ef að FF kemur með update sem slær IE 7 við þá skipti ég örugglega aftur, það er ekkert heilagt í þessu. Bæði forritin eru frí og enginn "switching cost" ef svo má að orði komast.

Lacshamash.

Anonymous said...

Jesús Gummi, ferlega er ég ánægður með að þú fattaðir brandarann minn með lespíuna.

Og bara svo þú komir ekki með komment tilbaka einsog "ég fattaði ekki brandarann", þá er ég kaldhæðinn núna.

Refurinn er klárlega betri en IE7. Það er vísindalega sannað.

Gummi said...

Óþarfi að stela kommentinu mínu af CuntJuice.

Algjörlega uncalled for Elías.

Anonymous said...

vá eruði strax byrjaðar að rífast stelpur?? til að koma í veg fyrir frekari leiðindi þá veit eg að ELLI kemur í rauðabolnum og stutta pilsinu sínu....Svo eg var að spá gummsi hvort u gætir ekki verið í eh öðru? Nenni ekki að hafa ella fúlann!
kv. Ívar A.

Anonymous said...

elli? ekki er þetta elli mjói? ég heyrði að þú mættir ekki drekka því ef þú verður þunnur þá veðruru ekki neitt? ok gummi sagði mér að segja e-ð í þessum dúr. hlakka til að fá þig til london í bjór.

Anonymous said...

Já mamma veit where is the place to be í London..mikið rétt!!

Við erum komin á 10. þátt í seríu tvö og þetta verður ekkert þreytt með hverjum eltingaleiknum á eftir öðrum..miller er líka svo sætur!

Stay white og passaðu þig að týnast ekki í bókunum .*

Anonymous said...

Gummi - > The Beatles - Love album