Góðir tímar (e. Good times)
Ég var e-ð að flækjast, skoða myndir frá henni Sólrúnu systur, þ.á.m. af Legend partýinu sem var í Furugrund þann 23. júní síðastliðinn. Það var geeeeðveikt og ég á ekki fleiri orð yfir það frekar en fyrri daginn. En annað sem er geðveikt eru sumar hefðir, hefðir sem tengjast afmælum í minni fjölskyldu og ábyggilega-kannski mun mikið fleiri fjölskyldum. Þá er málið að vekja afmælisbarnið snemma, helst fyrir 7, með því að ryðjast inní herbergið hans/hennar og syngja afmælissönginn og afhenda afmælisgjafir. Svona var þetta lengi vel, enda við 3 kolvitlaus sem vissum ekkert skemmtilegra en afmæli, Kolbrún '80 módel, Sólrún '82 (miðjubarn hahaha) og svo ég á því herrans ári '84, sem er geðveikt. En þetta var alltaf svaka athöfn ef einhver átti afmæli, og við gerðum þetta síðar við hana Þurý litlu þegar hún kom inná heimilið ('94 módel, gömlu hress hæ!). En í sumar þegar ég var nýkominn frá London og 23. júní rann upp átti ég ekki alveg von á því samt að þessi hefð væri ennþá í gildi. Jæja, þar sem Sólrún er úber æst í afmæli og jól þá var hurðin hjá mér sprengd upp klukkan 7 og inn þrömmuðu Sólrún, Óskar og Þurý og sungu hástöfum. Heppinn ég? Ég fékk flash í andlitið:
Og stuttu seinna þegar ég opnaði augun blasti Sólrún við mér með geðveikisglott á andlitinu, vopnuð myndavél, ég setti auðvitað upp sparisvipinn, debetkortasvipinn, bekkjarmyndasvipinn, "hvað-haldiði-að-ég-hafi-gert-í-gær-strákar svipinn", "auðvitað-elska-ég-þig-ástin-mín svipinn"... þennan hérna:
Önnur hefð, sem hefur myndast á afmælinu mínu er sú að það er alltaf bökuð kaka handa mér, uppáhaldskakan mín sem Lára konan hans Andrésar á höfundarréttinn á (takk fyrir það). Ég er auðvitað mesti köku og bakarísmönsari sem er til, allavega einn af þrem mestu sem ég veit um, svo að ég rek svolítið á eftir afmæliskökunni alltaf, og þar sem afmælið mitt ber uppá sumar er ég vanalega að vinna á afmælisdaginn, og dreg ég þá vinnufélagana með mér í afmæliskökuna. Þetta árið var ég svo heppinn að vera að smíða niðrí Set í kynngimögnuðum (Ingi Magnús) félagsskap, enginn annar en Brynjar var á svæðinu og auðvitað var hann dreginn með. Magnús Hlynur tók þessa mynd við tilefnið:
Sumarskap í guttunum, ævintýri 17. júní nýliðin (16.júní sofnaði ég í rúminu hans Brynjars þar sem við héldumst í hendur og sögðumst elska hvorn annan) og gott partý framundan um kvöldið, þar sem Brynjar missti m.a. framtönn þegar hann lenti í gildrunni hans Geira, og sleit úrið mitt í leiðinni. Ágætis úr sem fór þar. Ég ætla að athuga hvort að Hallur tannlæknir geti kannski lagað það þegar hann lagar tönnina á Brynjari.
Djöfull öfunda ég mig samt á þessari mynd.
2 comments:
Hehe "Even the bad times are good as soon as I get to you baby"
Good times, good times... þessar myndir gleymast seint! Ætlaði aldrei að hætta að hlægja þegar ég sá þig..nývaknaður og já eða jafnvel ennþá sofandi..sést illa!!
Hlakka til næst..það verður sko alltaf eh næst...
Post a Comment