Leave me out, with the waste...
... this is not what I do. It's the wrong kind of place to be thinking of you. It's the wrong time, if somebody knew, it's a small crime, and I got no excuse, and is that all right with you...
Smá blogghermir, en þessi helgi var mögnuð, ein sú besta í langan tíma. Ég á þó von á því að hún verði toppuð eftir 2 vikur eða svo, þegar heilaga þrenningin aka skytturnar þrjár, aka Bakkabræður, aka Borðtennisfélag Sólheima mætir til London. En afhverju var helgin svona góð?
1. Föstudagurinn var rólegur, sem er lykilatriði fyrir góðri helgi. Þá safnar maður kröftum (sparar peninga) og slakar á. Ég fór í mat til Óla og Mæju í mexíkanst brjálæði og kökur, svo updeituðum við okkur af Schofield og félögum í Prison Break, 12 þáttur takk fyrir. Vissuð þið að Wentworth Miller er 34 ára? En allavega, easygoodtime stemning og svo heim að lesa Choke!
2. Hitti Óla, Hödds og vin hans Skúla sem var í heimsókn í English Breakfast niðrá St. Christophers Place, sem er einn uppáhaldsstaðurinn minn í London, svona lítið falið hverfi fullt af veitingastöðum þar sem fólk situr úti og fær sér Cola Light. En góð byrjun á góðum degi.
3. Eftir matinn röltum við niður á Kingley Street, keyptum okkur póker chips og settumst inná "The Red Lion" sem er mjög fínn dagdrykkjupöbb, mjög oldschool, bjórinn er gefins (nánast) og engin tónlist, bara eitt stykki gæsapartý. Spiluðum póker og sötruðum öl framað kvöldmat, ógeðslega karlmannlegt.
4. Liverpool vann Man. City og Stebbi frændi setti sigurmarkið.
5. Skúli vinur hans Hödda laumaði á tónleikum á Borderline, hann s.s. spilar á bassa í hinni feykinettu hljómsveit Diktu og því vorum við ekkert að efast um dómgreind hans þegar hann benti okkur á að það væri athyglisvert band að spila þar. The Sadies var umrætt band, kanadískt rokk/country band og ég á ekki orð yfir hvað þeir voru góðir. Mér leið einsog ég væri staddur í gömlum vestra, rokkvestra. Mæli endilega með að allir tékki á linknum sem beinir þér á mæspeisið þeirra, og hlustið á lagið "Lay Your Arms Down", en það einkennir mikið stemninguna sem var ríkjandi. Hljómsveitin er samansett af 4 einstaklingum, trommari, síðhærður þybbinn mexíkói á kontrabassa og síðan bræðurnir Travis og Dallas Good (nett nöfn!). Þeir skiptast á að syngja, spila báðir á gítar af einskærri snilld og Travis spilaði einnig á fiðlu. Kannski vert að geta þess að þeir bræður eru í keppni hvor er ljótari, og má ekki á milli sjá. En jesús þeir eru jafn góðir tónlistarmenn og þeir eru ljótir, í krumpuðum jakkafötum með lakkrísbindi og kótilettubarta, eins sleasy og kebab í Austur-London. Plús það þá syngur Dallas Good einsog Nick Cave meðan bróðir hans er heldur hástemmdari, og saman mynda þeir harmoníu sem lætur eyrun á Eggerti Magnússyni blaka og mynda einskonar "Butterfly effect".
Ótrúleg tónlist. Einnig eru þeir þekktir fyrir að vera mjög góðir live, og spila hátt í 20 lög og taka varla break á milli.
6. Eftir tónleikana fórum við á O'neills og tókum þar besta O'neills djamm ever. Dans dans dans og ruglað í fólki, evrópumet féll í jacki og við dönsuðum við fullt af unnustum.
7. Á O'neills hittum við hóp af íslenskum stelpum sem komu síðan með okkur í Chinatown þar sem við fengum okkur önd (sem er alls ekkert óeðlilegt í London klukkan 4 um nótt). Ég tók gamla Geira Gangó djókið, sagði við eina stelpuna að hún væri með e-ð í auganu, setti svo vísifingur að auganu á henni voða varlega og vann þannig traust hennar. Síðan tróð ég puttanum uppí augntóftina á henni við litla hrifningu hennar, en djöfull er þetta alltaf jafn ógeðslega fyndið.
8. Í dag, sunnudag, spiluðum við í hinu íslenska landsliði Lunda við Norðmenn og unnum sannfærandi sigur 3-1 sem hefði getað orðið mun stærri eða mun minni. Þeir voru ekki með neitt celeb í liðinu en ég fann týnda (norska) tvíburabróðir minn. Ég gat engan veginn einbeitt mér í leiknum þar sem einn sæti gaurinn í liðinu hjá þeim var skuggalega líkur... mér?
9. Man Utd og Chelsea gerðu jafntefli, þ.e. töpuðu bæði stigum svo Liverpool er einu skrefi nær titlinum. Ég held það sé samt dágott maraþon framundan hjá þeim. En hver vill svosem vinna þessa asnalegu deild, Meistaradeildin er það sem skiptir máli, spyrjið bara Eið Smára!
10. We've won it five times, we've won it five time, in Istanbul, we've won it five times!!!!!
Bless í bili,
Áfram Liverpool.
17 comments:
Djöfull eru þeir ljótir..good, edwood, sean dean og eh belitskyfokker með heary ad hell hárkött, Whatever!!
Gott að þú sért að drekkja þér í kebab húrígúri og danskult menningu londonstræta..og ennþá að stríða smástelpum sem jú jú fylgir skólapeyjathinginu sem þú ert með going on..Good times :)
Vona að þú hafir það superr og farir varlega í bækurnar..
Knús :*
Gummsi....og hvað ætlar Elli samt að gera? drekka coke light og greiða í píku.....?
kv. Ívar A.
Bíddu Ívar, hvað þykist þú allt í einu vera?
Maðurinn sem hefur þörf á því að drekka Coke Light ert þú kallinn minn.
Og hei, fáðu þér vinnu!
Elli minn, ég blanda í coke light!!það eina sem þú virðist geta blandað er malt og appelsín!
Mér finnst leiðinlegt að segja þér það en ég neyðist til að drekka þig undir borðið....luser ég meina lúði!!
ps. í hverju fellst vinnan þín? sitja og....commenta á bloggsíður?
Ívar A.
úúúú heiii.. Töffari því þú kannt að blanda! Og þetta er ekki að hitta á veika punkta hjá mér Ívar, þeas að ég kunni bara að blanda malt og appelsín.
Og í hverju felst vinnan mín? Jú hún felst mikið í því að sitja en í hverju felst vinnan þín? Hanga á krúsinní allar helgar og drekka fyrir bæturnar?
P.S Og hvað var það sem ég sagði við þig sem startaði þessu heimskulega kommenti þínu um coke-ið og það að greiða í píku?
Elli,, ekki falla í grifju Brynjólfs Hjörleifssonar sem hefur póstað heilum 2 commentum undir mínu nafni.
En þar sem þú ert alveg þektur fyrir að jump-to-conclusion þá er þér alveg fyrirgefið að gagngrína það sem ég kýs að eiða tíma mínum í, sem þú hefur klárlega ekki hugmynd um.
váááá.. Svo mikill Billi! Ég hringdi í Billa og hann hélt bara áfram að ljúga og reyndi að halda því fram að þetta hefði verið Gummi. En ég náði þessu uppúr honum fyrir rest.
Sorry Ívar. Ég var samt ekkert að jump-to-conclusion. Ég hélt bara að þú værir atvinnulaus og ákvað að koma með skot á það, svona í skiptum fyrir "greiða í píku" skotið! :)
En sorry Ívar minn. Ég elska þig enn.
Boys, boys, boys.
Eigum við ekki að geyma slagsmálin þangað til í London. Ég ætla að vona að það verði allt logandi í rifrildum einsog í Kolding um árið.
vá strákar-
mér finnst að billi ætti að byðjast fyrirgefningar
hlakka til að fara með ykkur til London og gummi ég get ekki beðið eftir að hitta þig
Billi hér....bara að segja hæ!!
ég er sammála Gummsa!! við skulum bara fara í slag í UK!!
Ætla reyndar að leyfa mönnunum sem eiga hlut að máli að útkljá þessa uppákomu!
PS. Elín.....glætan!
við skulum ekki taka mark á honum billa litla hérna fyrir ofan mig- hann er þroskaheftur og veit stundum ekki hvað hann er að skrifa.
hlakka svo til eftir nokkra daga...
Hæ Billi hérna.
þetta var allt saman grín sem ég skrifaði áðan, ég bara missti óvart stjórn á puttunum mínum og þeir skrifuðu allt annað en það sem ég ætlaði að segja. en það sem ég vildi segja er að ég og elli og ívar og elín erum að fara til London bráðum. það verður gaman. að heimsækja gummsa bæ bæ
Dalli
hahahahahahahaha..hahah.. þetta er ekkert smá fyndið!! Billi er snillingur. haha..!
Þessi ferð á eftir að fara i rugl strákar ef að við fattið það ekki! Billi á eftir að rassa allan fjandann, Elli á ekki eftir að nenna að sitja hja ykkur á meðan þið snæðið kvöldverðinn, Ivar á eftir að brjálast þvi að hann verður eflaust læstur úti og þið eigið ekki eftir að sja Gumma þar sem að hann á eftir að finna ser eina grænlenska og með kandístennur!! Snilld..
En elska ykkur samt alla eins og þið eruð..................................................................
NOT
Billi?
Elín?
Hvað er í gangi? Hlakka til að hitta ykkur öll, sérstaklega Elínu því hún er búin að lofa að koma svo lengi, ég held það sé óhætt að segja að ég verð ekki lengur vinur hennar ef hún beilar.
Gummi...ég kom ekki nálægt þessu...eg skrifaði fyrsta commentið, en svo var það Elín háskólanemi hin...sem er vægastsagt dónalegt!
Það þarf að kenna þessu liði mannasiði!
Billi hressi!
Það verður samt erfitt að toppa Lon-Don-Dóna!!!
Öklinn, Löggan, Smugan, Botnvarpan, Pólverjinn, Kínverjinn, Gamla konan á O'neills, Vodka-Red Bull, Highbury, Public revelation, Vasksturtuklóstið, harði dyravörðurinn, Indverjanir, Rush-ið, ógeðs-stripp-búllan, Mexican salsa dipping með eyrunum, Tequila (Hilli), fleira og fleira.....
HAHAHAHAHAHA...
Það er mikið satt, það verður erfitt að toppa Lon-Dónana. Ég vona líka bara, heilsufarslega og siðgæðislega, að sumt sem gerðist þegar Brynjar og Hilmir komu, verði ekki reynt að toppa.
En ég ætlast samt til þess að þegar Humarin, Sjálandsálftin og Elli P. sameini krafta sína komi einhver töfrabrögð.
Og sorry Elli.
Post a Comment