Jól, Áramót, mjög heit!
Enda var hitastigið um 10 gráður yfir jólin, heitustu jól sem ég man eftir. Ef það heldur fram sem horfir þá verða jól á Íslandi eftir 15 ár haldin í Nauthólsvíkinni, Mojito í staðinn fyrir jólaöl og Speedo í staðinn fyrir bindi. Ég þangað pant!
Það helsta sem hefur gerst síðan síðast er sennilega það að ég kom á Ísland, Ölfusá flæddi yfir bakka sína með þeim afleiðingum að bærinn fór á kaf (ef bærinn er skilgreindur sem Árvegur fyrir neðan Kaupfélagið), Ég fór á Evrópudjamm nokkrum sinnum og eitraði fyrir mér, Billi bætti metið sitt í eitrun og síðan komu jólin! Ég fór aldrei í jólaskap svo ég viti til þess, þetta kom bara og fór og núna eru áramótin framundan. Þau eru með öllu stefnulaus þetta árið. Maður hefur alltaf getað treyst á gott heimapartý sem síðan þróast útí heimabæjar-ball í Hótelinu eða HvítaHúsinu, en þetta árið er ekkert í boði fyrir djammþyrsta Selfyssinga. Þar sem mig langar til að vera á Selfossi þá er líklegast að maður ryðjist með yfirgangi inní heimahús valið af handahófi og verði dónalegur þar. Allar ábendingar um gamlárspartý, gamlárspartý, gamlárspartý vel þegnar.
Á morgun er síðan Hjalla-glaðningur þar sem ég vonast til að sjá sem flesta félaga, þessi partý enda oftar en ekki í tómri vitleysu (VallaPalla íkveikjan, VallaKrakk heimreiðar-innreiðin o.fl.) þannig að ég ætla að búa mig undir e-ð mjög sérstakt. Mæti með skriffæri og sundföt, ásamt formúlublaði.
Talandi um formúlublað, þessi taktík hjá Bretunum, að hafa próf í byrjun janúar er ekki vinsæl, það síðasta sem ég vil eyða jóla"fríinu" mínu í er að sitja yfir bókum, því það er e-ð sem ég get gert í London takk fyrir.
Svo vil ég nota tækifærið og mæla með "Heroes" þáttunum. Ég held að SkjárEinn sé að fara að byrja að sýna þetta núna. Ég allavega fékk nokkra illa fengna þætti hjá Joðmanninum og hef ég haft það að sið undanfarið að eyða tíma mínum milli 2 og 4 á næturna í að horfa á þetta. Virkar mjög vel sem dægrastytting, en snýr hinsvegar sólarhringnum við í leiðinni sem er hvimleitt.
En núna hef ég toppað sjálfan mig í blogginu svo að ég ætla að fara að gera e-ð uppbyggilegt, t.d. fara á Pakkhúsið með Billa!
Sjáumst þar!
No comments:
Post a Comment