Saturday, January 13, 2007

Benny's í Kastljósinu

Sá að þau hefðu verið að spila í Kastljósinu síðastliðinn fimmtudag, og auðvitað varð ég að kíkja á það. Linkur til að sjá það er u.þ.b. hérna. Ég nota hvert tækifæri til að sjá Bassa spenna upphandleggina, enda var það daglegur viðburður á menntaskólaárunum (sem er orðið alltof langt síðan). Við fórum í Styrk ásamt Brynjari oftar en er heilsusamlegt, og klufum atómið.

Síðastliðinn fimmtudag fór ég hinsvegar á skemmtilegan stað í Islington í Norður-London, sem ber heitið Hope and Anchor. Hann er helst frægur fyrir það að U2 spilaði sitt fyrsta gigg í London þar. Semsé sögulegur staður. En þetta kvöld var íslenska stuð-rokk-ballöðu sveitin Dikta að troða upp fyrir dansi. Þeir áttu mjög góða tónleika, og vorum við þarna í góðum hópi Íslendinga aðallega sem skemmtum okkur konunglega. Spurning hvort að Dikta eigi eftir að fylgja U2 eftir og spila útitónleika við Sloane Castle seinna meir? Allavega myndi ég mæta og syngja með Breaking The Waves, fremst við sviðið.

Meira af tónlist. Ég er að fara á tónleika 15. mars næstkomandi, sem mig hlakkar mjög svo til að fara á. Hljómsveitin er ekki af verri endanum, The Arcade Fire dömur og herrar. Var svo heppinn að fá miða í gegnum Helga vin minn hérna í London, sem stalkaði miðasölurnar um leið og þær opnuðu, því það seldist upp á nokkrum mínútum á tónleikana. Ég hef óstaðfestar fregnir af því að Elías nokkur Joð sé að reyna eftir fremsta megni að finna sér miða á þessa tónleika, sem þýðir auðvitað, heimsókn til London! Sem er mjööög heitt!

Gott í bili, meira seinna, bæjó!

2 comments:

Anonymous said...

I dont think so..sko með Diktu..og já líka hitt..

Ef þú finnur eh góða tóneika í loundres þá kem ég..like that!!

Ég ætla mér líka margt í vor, tónleikar með Damien Rice, finna eh kúl í operunni og kíkja á eitt stykki danskan söngleik..vúbdídúú..og auðvitað að finna draumapúðaverin mín í eh búð sem ég á líka eftir að finna ásamt matching löber..because I'm a ladie, florence!!

Gummi said...

Sólrún, hefurðu heyrt talað um eyðnismitaða manninn sem vitnaði í Little Britain og andaðist?