Wednesday, January 31, 2007

Þjóðarsálin...

... með Þorgeiri Ástvaldssyni er leiðinlegasti útvarpsþáttur landsins, og með yfirburðum. Ég er ekki að segja þetta til að vera með persónulegar árásir, reyndar jú smá, en er samt ekki eðli manna að forðast leiðindi? Þessi þáttur snýst allavega alltaf uppí það að fólk fer að tala um hin ýmsu vandamál, kvartandi og hundfúlt útí allt og alla. Ég verð mjög þunglyndur af því að hlusta á þennan þátt, það gerðist nokkuð oft þegar maður var að keyra heim úr vinnunni undanfarin sumur. Stundum langaði mig að keyra inní hóp af fólki, eða niður e-ð verðmætt, sýna svona þögul mótmæli. Kannski gæti einhver hringt í Þorgeir og kvartað undan mér. Og pælið í því, hvaða fólk hringir inní útvarpið til að tala um leiðindi?

Leiðinlegt fólk með athyglisbrest, e-ð sem maður vill helst sleppa við að lenda við hliðiná í flugvél, hvað þá hafa það í útvarpinu sínu þegar maður keyrir framhjá hóp af fólki eða einhverju verðmætu.

Þetta sama fólk er búið að vera duglegt að setja inn pistla á Vísi.is og Mbl.is. Þessir pistlar koma á hverju ári á þessum tíma, þ.e.a.s. þegar bankarnir skila inn uppgjörum sínum fyrir árið. Fólk er að kvarta undan því að "bankarnir séu að okra á fólkinu í landinu" og að hagnaður þeirra renni beint úr vösum íslenskra fjölskyldna. Er þetta fólk ekki alveg í lakið?

Svo margt sem mig langar að segja, en ég held að ég væri þá bara að finna svolítið upp hjólið aftur, svona pistlar minna mig á rímu, sem á vel við:

".... það er bara ekki svaravert/
það er einsog Steini Njáls, einfaldlega barnalegt/"

Komum með tvær staðreyndir.
1. Ef ég er með yfirdrátt, þá borga ég vexti.

2. Vextir á Íslandi í augnablikinu eru háir.

Þetta vita allir. Hinsvegar vill fólk frekar eyða pening sem það á ekki, og þarf því að borga vexti. Málið er að þetta gengur líka á hinn veginn. Ef þú leggur pening inná bankann, þá borgar hann þér vexti, sem eru þó lægri en vextirnir sem þú borgar honum fyrir sömu viðskipti (lán á peningnum). Það er eðlilegt enda er þetta fyrirtæki sem þarf að standa staum af kostnaði við sína starfsemi, alveg einsog fyrirtækið sem þú vinnur hjá. Eftirspurn eftir lánsfé innanlands er búin að vera gríðarleg undanfarin ár. Neyslufylleríið á Íslandi er hvatinn af þessu öllu saman.

Eitthvað segir mér að fólkið sem skrifar pistlana um "misskiptingu auðs" og "okur bankanna" sé að skíta á sig með 100% bílalánið og 90% húsnæðislánið, sem það endurfjármagnaði fyrir 2 árum og keypti sér heitan pott fyrir mismuninn.

Það er nefnilega dýrt að eyða pening sem maður á ekki. En kannski óþarfi að kalla út vælubílinn líka.

Gummsi - ef þið lásuð þetta þá veit ég ekki hvað þið voruð að pæla. Þið eruð öll ógeðslega tekin!

10 comments:

Anonymous said...

100% sammála

fólk er fífl

Anonymous said...

ég er málefnalegur

Anonymous said...

vááá ég er mjjjög sammála með þjóðarsálina. Enda klikkaðist ég þegar ég heyrði þetta í útvarpinu um daginn og veistu hvað ég gerði? .....ég slökkti á útvarpinu.

Já ég veit, ég er klikkaður.

Gummi said...

hahahahahaha....

shit eruð þið báðir mest public gæjar sem ég veit um, er það e-ð í blóðinu?

Anonymous said...

100% samála, fólk er alltaf tilbúið að ásaka bankana fyrir eigin heimsku, fólk verður bara að kunna að taka á málunum og höndla eigin fjármál sjálf.

Dýrt að innrétta allt úr Epal, og eiga 3 bíla og guð má vita hvað, sérstaklega þegar Bankinn fjármagnar þetta, auðvitað vill hann eitthvað í staðinn

Gummi said...

Íslendingar eru samt ferlega flottir á því, því verður ekki neitað.

Land Cruiser er mest seldi bíllinn á landinu, það er búið að keyra húsnæðisverð uppúr öllum velsæmismörkum, Laddi er ennþá fyndinn og Davíð Oddsson tók allan peninginn sinn útúr bönkunum þegar stjórarnir ákváðu að borga sér arð hérna um árið.

Hvar er Davíð núna? (Í Seðlabankanum auðvitað, tekur ekki krónurnar þínar útúr honum!)

Um hvað snerist þetta komment?

Anonymous said...

Tekin..samt áhugavert og ég er alveg sammála..þurfum engar helvítis gucci töskur, eða nei!

Anonymous said...

Þorgeir Ástvaldsson er með Reykjavík síðdegis á Bylgjuni...

En annars er samt ekki aðalmálið að bankarnir eru alltof glaðir við að lána hverjum sem er fyrir hverju sem er. Hér áður fyrr voru menn heppnir að fá smá framkvæmdalán og þurftu helst að eiga fyrir íbúðinni eða húsinu. Í dag er svo auðvelt að eignast hluti. Þarft bara að eiga 2 mill. til að kaupa hús á 25 mill. þarft bara að eiga 100 þús til að eignast bíl á 3 mill. Fólk er fífl og það vita bankarnir líka. Hér eru öll lán verðtryggð nema þú viljir taka óverðtryggt lán á svimandi vöxtum og hvað þýðir það? Bankarnir taka aldrei áhættu. Þetta er svo safe og einfalt fyrir þá! "við lánum þér 20 milljónir í 40 ár og þú endar með því að borga okkur 41 milljón samkvæmt "núverandi" verðbólguspám" Annars er rosalega auðvelt að láta bankana vinna fyrir sig, hæstu mögulegu vextir núna eru um 13% 1 milljón -> 130 þús á ári!!

Enda er fasteignaverðið komið í rugl hérna heima eftir að allir gátu keypt.

Gummi said...

Brynjar: Þú ert mun málefnalegri hérna inni, miðað við CuntJuice allavega!

Skemmtilega mismunandi hliðar á kappanum!

Anonymous said...

mjog ahugavert, takk