Krókóbíll (bannað börnum)
Þetta blogg heitir Krókóbíll.
Ég er búinn í fyrsta prófinu mínu í þessum skóla. Þá eru 5 eftir (2 fljótlega, 3 í sumar).
Brunabjallan í skólanum fór í gang áðan 30 mínútum fyrir prófið og það þurfti að rýma skólann. Einhver blökkumaður (pottþétt) hefur verið illa lesinn og sett kerfið í gang til að fá frest. Prófið frestaðist um 21. mínútu.
Á 21. mínútu er hægt að læra eitt módel illa. Ég býst við því að greyið blökkumaðurinn (pottþétt) sé fallinn.
Við þurfum að handskrifa öll próf, soldið einsog í F.Su. í gamla daga. Ég fékk verk í puttana því ég hélt svo fast um blýpennann minn.
Þegar ég skrifaði sum orð sem ég var ekki 100% viss með stafsetninguna (einsog bureaucracy) þá beið ég eftir að það kæmi rautt strik fyrir neðan orðið sem myndi mæla með réttri stafsetningu.
Það kom aldrei.
Ég er að fara á Fulham - Tottenham á laugardaginn. Þá sé ég Vincenzo Montella, hetjuna mína síðan í 4. bekk, loksins spila.
FL Group er búið að græða milljarð á dag það sem af er árinu. Ef það kallar ekki á grillveislu þá veit ég ekki hvað!
"Afhverju get ég ekki verið meira einsog Hannes Smárason?" - Hann er pottþétt ógó montinn eftir skaupið.
Ég sá frétt áðan á Vísi.is þar sem Guðmundur nafni minn í Byrginu hélt því fram að honum hafi verið nauðgað, einmitt af konu sem hefur kært hann fyrir nauðgun.
Hann heldur greinilega að "sá er sem segir" reglan sé ennþá í gildi.
Ég fékk sendan link áðan sem sýndi myndir af Guðmundi nafna mínum í Byrginu í hlutverki "Iron Master", í djörfum ástarsenum.
Lítur út fyrir að hann hafi haft rétt fyrir sér með nauðgunina! (það er búið að fjarlægja myndina sem var hérna, en hún sýndi explicitly hvernig Guðmundur í Byrginu fékk það óþvegið)
Þetta blogg er bannað börnum.
Kveðja, Pabbi Króki.
4 comments:
afhverju krókóbíll?
En veit þú stendur þig vel, blökkumenn eða ekki, stendur þig vel ;)
Guðmundur í byrginu á setningu ársins 2006 : "langt síðan þú hefur séð þennan...lille ven!" gives me the creeps..
Og já Elli, ég var að láta gumma tékka á damien aftur..aftur já!! Hann er svo gleyminn.
Var ekki líka einhver gaur í viðtali með G. í Byrginu sem sagði: "Já Guðmundur það eru nú fá bönd sem geta haldið þér."
Og síðan hló hann ógeðslega mikið!
Af hverju tékka aftur? Er hann ekki búinn að vera hlusta á plötuna sínan hún kom út?
þetta -> http://www.youtube.com/watch?v=jO_PEeBYG5o&embed=1
er þarft innlegg fyrir gumma í byrginu
Post a Comment