2 hlutir
Ég var vakinn í morgun, það er 2. hluturinn sem ég ætla að tala um.
1. hluturinn sem ég ætla að tala um kom í kjölfarið á 2. hlutnum. Ég sá frétt sem sagði eftirfarandi:
"Ný könnun undirfataframleiðandans Triumph leiðir í ljós að breskar konur eru með stærstu brjóstin, en frá þessu greinir The Sun. Ríflega helmingur breskra kvenna notar samkvæmt könnunni skálastærðina D og segir götublaðið að Kelly Brook sé dágóð sönnun þess að breskar konur séu brjóstgóðar."
Ég get ekki setið á mér þegar ég sé svona. Ég bara verð að segja e-ð.
Getur þetta stafað af því að þær þjáist af offitu? Kannski einhver hluti, en ég sver að ef það er e-ð vald í þessum heimi sem við lifum í sem ákveður það að kvenfólk sem fæðist í Bretlandi sé með stærri brjóst en kvenfólk annarsstaðar í heiminum þá er það einungis, já EINUNGIS til að draga athyglina frá andlitinu á þeim. Því ef við viðurkennum að slíkt vald sé til þá er nokkuð ljóst að það gerði kvenfólk í Bretlandi ákaflega óaðlaðandi á svæðinu sem nær frá háls og uppað hvirfli.
En það er bara mín skoðun.
Þetta var 1. hluturinn sem ég ætla að tala um. Núna kemur 2. hluturinn.
Brunaæfingar eru e-ð sem er mjög svo nauðsynlegt og algjörlega af hinu góða. Eldsvoðar geta verið mannskæðir og því nauðsynlegt að það sé hægt að tæma stór húsnæði á tiltölulega fljótum tíma ef eldur kæmi upp. Einsog með margt annað; sælgæti, áfengi, einelti, ljósabekkjanotkun og breskt kvenfólk, þá eru brunaæfingar góðar í hófi. Í húsnæðinu sem ég bý í núna er það ekki alveg málið.
Á haustönninni voru sirka 3 slíkar æfingar, allar á jafn óheppilegum tímum, annaðhvort eldsnemma á morgnana eða eftir 12 á kvöldin. Þá þarf maður að henda sér í föt á "núlleinni" og hoppa út til að geta beðið þar í kuldanum meðan slökkviliðið kemur með sírenurnar, leggur fyrir utan og slökkviliðsmennirnir geta komið inn og fengið sér kaffi og slökkt á brunabjöllunni. Allir pottþétt nýbúnir að taka bísinn svo þetta líti betur út.
Þessa önnina hefur þó annað verið uppá teningnum. Ég hreinlega held ekki tölu yfir allar þær brunaæfingar sem hafa verið haldnar. Núna er veðrið öllu kaldara en á síðasta ári, svo að þetta er orðið helvíti þreytt, vægt til orða tekið. Sömu "óþæginlegu" tímarnir eru notaðir og allaf glymur jafn sjúklega hátt í sírenunni sem sker sig lengst inní heilann á manni og skilur ekkert eftir sig nema höfuðverk.
Í morgun vaknaði ég klukkan 7 við einmitt þetta væl, það nísti alveg lengst inní höfuðið á mér. Ég var að vona að það væri bara verið að testa bjölluna, einsog er gert suma morgna, og þá hringir hún bara í 15 sek eða svo. Ég lá rólegur og hélt fyrir eyrun. En allt kom fyrir ekki og skömmu síðar heyrði ég að fólk var farið að streyma út í kuldann. Ég ákvað að í þetta skiptið skyldi ég ekki gefa mig, og lá því í rúminu mínu með haldið fyrir eyrun í örugglega 5-10 mínútur þangað til að það var slökkt á helvítis vælinu.
Ég vann...... eða?
20 mínútum síðar er bankað á dyrnar hjá mér. Þar stendur stelpa í skærgulu vesti með möppu með sér og segir að ég hafi ekki verið merktur inná listann hjá henni, s.s. yfir þá sem fóru út í æfingunni. Ég notaði öll trickin sem Siggi Sól kenndi mér um að ljúga og sannfæra fólk um ósannindi, en allt kom fyrir ekki. Hún meira segja spurði mig: "Are you lying?" Ég notaði allan minn sannfæringarkraft, klæddur einungis í nærbuxur starði ég í augun á henni og sagði "no".
Allt kom fyrir ekki, hún klagaði mig og Managerinn yfir húsinu tók mig á teppið. Ég laug að henni líka reyndar, og slapp því einungis með áminningu. Næst verður mér hent út.
Þess má geta að báðar konurnar sem komu við sögu í hlut 2 komu einnig óbeint við sögu í hlut 1.
Ég þakka kærlega fyrir mig, ég elska ykkur.
ge.
5 comments:
1. Komdu til Dk, allar með sílí og búlimíu á hjólum með körfur fyrir skærgulu vestin sín.
2. Veðja að þú hefur ekki gefið þeim hvolpasvipinn, hann klikkar ekki á ljótar konur í bretlandi :) og jú muffins eru mjúkar!!
Kemur næst..og gleðilegan valentínus :*
djöfull varstu tekinn þarna heilagur Guðmundur, don't mess with the (wo)man, sérstaklega ef hann er í skærgulu vesti með möppu og penna kl 7 að morgni, einhver þurfti að vakna á undan þér peyji, og ég er svo sammála þér með breskar konur, ljótara en lestarslys í hábjörtu
komu óbeint við sögu í hlut 1 fasæjfsdlfhæaslfhasjlæ hahaha - það er vegna þess að þær eru feitar er það ekki?
djók
samt ekki
Fucking asshole!
Það er ekki séns að ég eyði þessu kommenti frá þér Dr. Phil, þetta var bara of gott.
Cheers mate!
Post a Comment