Eiturlaus helgi #1
Þið lásuð rétt. Það var fyrirfram ákveðið að halda þessari helgi algjörlega vímuefnalausri. Það tókst svona líka vel, það er langt síðan maður hefur verið jafn ferskur. Reyndar hefur verið frekar afslappað djamm-andrúmsloftið í London eftir að maður kom heim frá Íslandi í byrjun janúar, held það sé rétt hjá mér að það séu aðeins búnar að vera 2 eitranir síðasta mánuðinn. Síðustu 2 mánuði slaga þær uppí 2 tugi, þannig að það er gott mál að balance-a þetta örlítið.
Það er búið að stofna "The London Brunch Club", ég og Johnson störtuðum þessu á laugardagsmorgninum þegar við fórum á "The Slug and Lettuce" í Borough og tókum power brunch til að starta helginni. Það var svo nice. Beint eftir það fórum við á Borough Market, sem er besti matarmarkaður í London, og þar fengum við okkur heimsins bestu brownie ásamt besta Cappuccino sem ég hef smakkað fyrr eða síðar.
Til að toppa menninguna fórum við á British Museum eftir það og kynntum okkur Grikki, Rómverja, Alexander mikla, Egypta, Mesópótamíu, Asíu til forna og fórum svo á kynningu um "History of Money" sem var mjög áhugavert. Magnað hvað er mikið af fornminjum á þessu safni, oft sem maður stóð stjarfur fyrir framan e-ð sem var nokkur þúsunda ára gamalt og hafði mikið sögulegt gildi og var bara "blown-away". Mæli með þessu safni fyrir alla sem koma til London, tók mig heilt ár að drífa mig þangað og ég á pottþétt eftir að fara aftur, þetta er svo stórt að ég komst ekki í gegnum allt.
Eftir safnið fórum við niðrí Soho og komumst að því að húsið sem Mozart bjó í er sama hús og fyrsta sjónvarpið var notað í. Samt erum við að tala um lítið og ómerkilegt hús sem í dag er notað undir samlokustað og litlar íbúðir.
Svo tókum við Óli og Höddi rómantískt videokvöld að hætti hússins, tvær myndir lágu í valnum eftir að við höfðum eldað okkur dýrindis kvöldverð. Við erum svo heitir.
Eiturlaus helgi #2 er síðan framundan, ásamt meiri skóla og gyminu. DK eftir innan við 2 vikur!
iTunes vikunnar:
Snow Patrol - Set the fire to the third bar
Arcade Fire - Neon Bible platan í heild sinni
Og já, prófið að Googla "Pabbi Króki" og sjáið 2 fyrstu niðurstöðurnar.
ge.
11 comments:
þetta var svo góð helgi - sjétt
þið eruð svo miklar dúllur.
þú gleymdir að segja að þið gistuð líka saman
sssssssssss
Hello there, I saw that you wrote "British Museum" in your blog, did you go there this weekend ore? And if you did, you probably did see that old Egypt mummy with enormous embalmed willie?
Hey Kelvin, I noticed there's a serious spelling error in your comment. You wrote "ore" when you should have written "or". Also, you always forget to put capital letters in your name. It really annoys me.
Are you by any means dyslexic, or is that a crocodile in your pocket?
Innan við 2 vikur..
Kelvin gæti almost verið Þurý á ensku..ekki satt?
Ég leiðrétti hana svo mikið á msn í gær að hún fór alltaf út af og endaði með því að signa sig út..hverjar eru líkurnar?
Yes i am dyslexic but you also never write your name with capital letters.
Kelvin: You wanna know why I never write my name with capital letters?
It's my fu**ing blog that's why.
Get a helmet.
ég er orðin mjög spennt að vita hvaða vinur þinn er að skrifa undir kelvin phil. pottþétt elli
Massive, please chime my fringe!!
Eða Kelvin aka Kevin úr Home Alone eitt og tvö ?
Heit?
Post a Comment