Tuesday, March 27, 2007

Compact Disc - Read Only Memory

Q: Hver hélt að geisladiskurinn væri úr sér genginn?

A: Ég!

Engu að síður sá ég mig knúinn til að kaupa eitt stykki í dag. Ég hafði verið að hlusta mikið á nýjustu plötu Klaxons, Myths of the Near Future sem er hægt að hlusta á á myspace-inu þeirra hérna, og þar sem mig langaði einstaklega mikið að eiga þetta á iPodinum mínum sá ég það eitt í stöðunni að kaupa helvítis plötuna bara. Impulse buy.

Svo fór ég að hugsa tilbaka og í sannleika sagt man ég ekki eftir síðasta skipti sem ég keypti mér geislaplötu. Ef ég gref langt aftur í tímann þá dettur mér helst í hug að það hafi gerst í kringum 2001-2002, og þá væntanlega einhver hörð rapp-plata með byssuhljóðum og munnsöfnuði. Sem er auðvitað mjög jákvætt.

Í London í dag var 16 stiga hiti og glampandi sól. Á morgun er spáð 18 stiga hita og glampandi sól. Á föstudaginn fer ég til Íslands þar sem spáin segir að það verði 3 stiga hiti og rigning um allt sunnan og vestanvert landið.

Svo á morgun blablabla.

Pabbi K.

5 comments:

Anonymous said...

Mikið er ég ánægður með þig að hafa skipt út úr bófarappinu yfir í góðu tónlistina.

Og svo annað, óheppinn að lélega tölvan þín höndlaði ekki flakkarann sem ég kom með til London því þar beið Klaxons eftir þér.

Anonymous said...

Klaxons, komnir á ipodinn, takk fyrir hintið :) My kind of music..

En manstu eftir fyrsta geisladisknum þínum? man að minn var Coca Cola safndiskur sem pabbi K gaf mér 1990ogeh, með lögum eins og Wind of change með Scorpions og Shakespear sisters með Stay..Bobbi Brown var líka með comeback á þeim tíma..Góð plata..good times :*

Anonymous said...

ég er batman

Anonymous said...

He's big
He's Red
His feet stick out the bed
Peter Crouch
Peter Crouch

Anonymous said...

aetlaru ekkert ad segja eitthvad nytt?

kv batman roff