Það er engin flaska of stór...
... enginn bjór of sterkur, ég drekk meira segja bensín blandað í klór!
Hver man eftir þessum peyja?
Í dag fór ég í fótbolta með vinum mínum í London, einsog alla aðra sunnudaga. Við hittumst í Regent's Park, skiptum í tvö lið og spilum uppá verðmætustu verðlaun sem um getur, heiður og virðingu.Hérna ber að líta hluta af hópnum, liðið sem spilaði á móti Finnlandi fyrir áramót.
NY-WAY, það hefur blásið heldur byrlega síðustu 3 skipti eða svo sem ég hef farið í bolta. Ég hef alltaf endað í tapliðinu, sem er að gera mig geðveikan. Í dag var engin breyting þar á.
Leikurinn var drengilega spilaður og í hinum ákjósanlegustu skilyrðum; þurrt og vel slegið gras, hæg austangola, miðlungs rakastig og einn og einn sólargeisli lét sjá sig. Eftir brösulega byrjun fór góða liðið (mitt lið) að sækja í sig veðrið á móti myrku öflunum (hinir). Við náðum 3 marka forystu sem við héldum lengstaf, allt þar til við komumst uppí 9 mörk. Þá lögðu myrku öflin bölvun á sóknarspilið okkar og fengu nornir í lið með sér til að hjálpa þeim að skora hvert heppnismarkið á fætur öðru. Þegar við náðum að aflétta bölvuninni voru myrku öflin búin að skora 5 mörk í röð og ná 11-9 forystu. Þá komu heilladísir og hjálpuðu okkur að jafna leikinn með frábærum samleik og glæsilegri framisstöðu sem hefði eflaust fengið Tóta Ingólfs til að kyrja ungmennafélagssöngva við varðeld (í Aldreilandi). En Adam var ekki lengi í paradís, eftir að ljósu hetjurnar höfðu jafnað metin þá kukluðu myrku öflin út einhver þau ljótustu mörk sem knattspyrnan hefur augum litið, og því fór sem fór. Ég tapaði enn og aftur.
Ég verð að játa á mig nokkra hluti.
- Einsog oft áður var ég mjög markagráðugur á köflum, ég reyndi að sóla of oft og of mikið og tapaði því boltanum nokkuð oft í einhverjum ævintýrum. Ég er enginn Ronaldinho.
- Ég var orðljótur þegar á móti blés og það hjálpaði ekki við að byggja upp liðsandann.
- Ég nennti aldrei að skipta í mark, og hefur það óneitanlega valdið gremju hjá liðsfélögum mínum sem hefur síðan grafið undan liðsheildinni.
- Ég átti nokkur glórulaus skot í enn vonlausari færum, sem stöfuðu af ofurtrú minni á eigin ágæti.
- Ég var latur við að hlaupa tilbaka í vörnina.
- Ég hengdi haus á endasprettinum þegar skammt var til leiksloka.
- Ég sagði brandara þegar liðsfélagi (Johnson) klúðraði færi. Hann kannski hló útávið, enda í hóp af sveittum karlmönnum, en hann var sár inní sér.
Niðurstaða: Ég brást liðinu.
Hvað ætli Gerrard finnist eiginlega um mig?
16 comments:
Þú þarft bara að flytja Einar Káta út til London og þá fer þetta að ganga.
ætti ég að þora að kommenta á þetta?
rags
ertu að kalla mig norn?? við vorum bara með mun betri taktík gummi minn. sorrí
"Leikurinn var drengilega spilaður og í hinum ákjósanlegustu skilyrðum; þurrt og vel slegið gras, hæg austangola, miðlungs rakastig og einn og einn sólargeisli lét sjá sig."
ERTU AÐ GRÍNAST GUÐMUNDUR - hæg austangola - í 99% tilfella hefuru ekki hugmynd um hvað er norður hérna í Don Lon :)
Höddi
HAHAHAHAHA
Hods: Ég þurfti að leita djúpt inní hugann til að muna hvaðan vindurinn kom. Síðan ímyndaði ég mér kort af London m.v. staðsetningu vallarins, og "steig inní kortið". Þaðan áætlaði ég að vindurinn hafi komið úr austri.
Ég leiðbeindi ykkur rétt á laugardaginn, er ég ekki bara "the human campus" eftir allt saman?
Æfingin skapar... áttavitann?
Guð: Þið voruð fo%&ings manni fleiri allan leikinn, og ef þú kallar það "taktík" þá já, voruð þið með betri taktík.
Átt þú annars ekki að vera í Fifa?
að hafa jón meter fyrir framan markmanninn allan tímann telst ekki sem manni fleirri. hættu svo að vera svo bitur útí fifa töpin þín---
áttaviti=compass
Compass.
Ég get ekki einusinni stafað það, hvað þá talið mér trú um að ég sé einn slíkur.
En Jón er hetja!
hæhæ gummi minn. thad er gaman ad elska thig. bæbæ thin olga
kanski fer eg bradum i fotbolta, en kanski ekki
kanski fer eg bradum i fotbolta, en kanski ekki
Ok Olga í dk frekar creapy.....en jæja hvað er eiginlega rangt við þessa mynd af Gerrard?
HAHAHAHH...hefur alltaf verið tapsár og já ekki sá besti í fótbolta en samt vel góður. Og man á shell mótinu í eyjum að þú sólaðir non stop og glottir á meðan með skott..
Er það kannski í fjölskyldunni að það hefur gleymst að setja í okkur gps..ég rata varla á klósettið heima en jú, æfinginn skapar meistarann, drekk meira vatn :)
gummi þú ert samt ekki einu sinni í búning á myndinni?!
are you the waterboy?? þú færð þitt tækifæri til þess að sann þig bráðum...its hokey!
http://www.cnn.com/SHOWBIZ/Movies/9811/11/water.boy/waterboy.jpg
Bara ef heimurinn væri jafn fyndinn og þeir sem kommenta hingað inn.
Og það gildir um alla!
Nema mig.
OMG LOL
Post a Comment