Helkin framhald
Úr því að ég var með svona hresst blogg síðast ákvað ég að reyna að bæta það upp með því að setja bara framhöld (is that even a real word?) á það. Þetta er fyrsta framhaldið.
Ég gleymdi auðvitað að segja frá því þegar Helgi og Óskar (báðir úr Reykjavík, þið þekkið þá ekki hahahahahahahhahahahahahhahaah) voru pissfullir á Old Street eftir djammið og ákváðu að skora Ella Joð á hólm. Þeir eru einsog allir aðrir á þessari jörð, gífurlega hissa á því hversu stór Elli sé, og því fór Óskar á háhest á Helga og þeir fóru í hanaslag, Elli Joð vs. The People. Ekki nóg með það að Óskar hafi gargað einsog hæna (ekki hani) og gert handahreyfingarnar að fugladansinum á bakinu á Helga, þá var Helgi í öfugum nærbuxum og það sást augljóslega þar sem það voru hneppur á nærbuxunum, aftaná!! Ég allavega vona að hann hafi verið í nærbó-unum öfugum útaf slysni, dómgreindarleysi, heimsku, nærsýni, geiðveilu eða húmor, en ekki útaf læknamistökum eða líkamlegri fötlun. Hef lítinn sem engan áhuga á því að vera vinur hans lengur ef svo er. "Still, imagine the possibilities!"
Meira framhald síðar. Ef enginn kommentar mun þessi kanína deyja:
"Grrrrr" - Pabbi Króki 2006
10 comments:
ég er BATMAN
Ég fór bara óvart í þær svona, vildi óska þess að það væri fyrir húmorinn, en ég var fullur í sturtu og fullur að klæða mig þannig að þetta var bara nett.
hanaslagurinn var eitthvað sem ég hefði viljað sjá...verst að vera undir og í þessu--þyrfti að sjá vídjó eða eitthvað. tala kannski við cctv.
Guð: Já talaðu við CCTV, ef ég þekki Bretland rétt þá er þetta til í svona 9 mismunandi sjónarhornum og með gleiðlinsu og Dolby hljóði.
Big Brother is watching (aldrei hef ég fattað þetta, hvaða helv. stóri bró?)
Mjöll: Batman er upptekinn, en eftirfarandi eru lausir:
Gosi, pabbi hans Gosa, Kínverjinn úr Karate Kid, Rottan úr Turtles, Fjólublái Teletubbies gaurinn, allir Transformers, Son of the Mask, Halli (bróðir Ladda), Valgerður Sverrisdóttir, Iron Master, Flubber og Ritch úr B&B.
Veldu!
Hehe hét ekki rottan í Turtles Reginvaldur á ástkæra yl-Hýra??
HEI! Ridge úr B&B er klárlega ekki laus. Ég bendi þér hér með á display myndina sem hef á MSN og þá sérðu að sá náungi er einning upptekinn.
Gosi er svooo tekinn..
Elli: Okei þú ætlar semsagt að vera allir. Ég bendi þér hér með á það að þú ert búinn að segjast vera Batman í nokkur ár núna (þó það sé meiri vitleysa en að Ingi eigi heima hérna), svo áttu Superman nærbuxur, ég segi að þú sért Robin, og svo núna þetta!
Ridge!
Gaur! Ég var svo löngu á undan þér með Batman. Ég er Ridge í daglegu og Batman þegar ég er ofurhetja.
Ég sagði þetta fyrir löngu Elli, ég samdi texta um þetta einusinni...
"Á mér fleiri hliðar en skapið á Ella Joð/
Þegar gellur sjá mig þá þurfa þær hjartahnoð/
Því ég er einsog Sibbi, er bæði með barta-og/
kalla mig Batman þó ég eigi ekki Batmanbol/
Þá er það afgreitt!
Einmitt Gummi, einmitt. Texinn sannar ekkert.
Ég er batman.
Post a Comment