Monday, March 19, 2007

Helkin

Elli Joð kom, við fórum á ARCADE FIRE sem voru bestu tónleikar sem ég hef farið á. Við sungum allan tímann með öllum lögunum, næstum því alveg fremst við sviðið einsog talað hafði verið um. Það tók á reyndar, röddin var slöpp það sem eftir lifði helgarinnar, en það er samt frekar töff ef maður pælir í því (?).
Á föstudeginum eftir tónleikana með ARCADE FIRE þá plataði Óli Johnson okkur á Bright Eyes tónleika sem voru mjög flottir, ekki það að ég hafi hlustað mikið á hann fyrir tónleikana en eftir þá var ég staðráðinn í að tékka betur á honum, minnti mig mikið á góðvin minn Ryan Adams. Kannski rétt að geta þess að fyrr um daginn versluðum við Elli frá okkur allt líf. Við tókum svo mikinn pening útaf íslensku kortunum okkar að íslenska krónan veiktist um 3% tímabundið meðan framboðið á krónunni jókst svona mikið á gjaldeyrismörkuðum. Þar af leiðandi hækkaði verð mikið á innfluttum vörum til Íslands.

Gummi + Elli = Verðbólga

Á laugardeginum tókum við yfirvegað böndí sem síðan endaði í mjög heitri þrennu. Café Pacifico, Planet Hollywood (ha? (já ég veit, mjööög spes)) og síðan Old Street djamm sem er alltaf mjög sveitt. Og þá meina ég sveitt einsog í gott.

Ég man ekki eftir sunnudeginum.

Eina sem ég man núna er að mig langar heim, ég nenni þessu ekki lengur. Ég nenni ekki einusinni að blogga lengur

4 comments:

Heyðingi said...

Gummi + Elli = Verðbólga---er þetta af því að Mjóhann er svo stór og þarf að sérsauma á hann föt og hann borðar svo mikið því hann er í keppni við spegilinn sinn um hvor er stærri?

Anonymous said...

Hljómar allt svo skemmtilegt. En hvað með myndasíðuna þína er hún dáin, var ekkert smellt af sönnunargögnum af arcade?

Knús í krús, mömmustrákur!

Anonymous said...

GE as in General Electric eða Guðmundur Eggertsson?

Anonymous said...

Fucking Brilliant!